KVÖLD MEÐ LIBIU & ÓLAFI

30. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

FIMMTUDAGINN 2. OKTÓBER KL. 20

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2. október, kl. 20:00 munu listamennirnir Libia Castro og Ólafur Ólafsson vera með listamannaspjall í fjölnotasal Hafnarhússins. Libia og Ólafur eru fyrstu listamennirnir til að takast á við nýtt viðfangsefni í A-sal Hafnarhússins þar sem gerð er tilraun til þess að leita uppi samband og samræður út fyrir veggi safnsins. Libia og Ólafur eru kunn á alþjóðavettvangi fyrir samfélagslega nálgun í myndlist sinni og á sýningunni nota þau sjónvarpsviðtalsformið til að spegla stöðu samfélags og tíðaranda.

Sýning Libiu og Ólafs í Hafnarhúsinu ber yfirskriftina Allir gera það sem þeir geta en þar leika þau sér að framsetningu og samhengi sýninga og skoða samskiptareglur á gagnrýninn hátt. Sýningarsalur er rannsóknarsvæði eða hugmyndabanki myndverka, þar sem gesturinn er áhorfandi en óhjákvæmilega einnig þátttakandi í ferlinu. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.  Sýningin stendur til 2. nóvember.

HAFNARHÚSIÐ ER OPIÐ TIL KL. 22:00 ALLA FIMMTUDAGA

AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT

 

Rokkið heldur innreið sína í Óperuna

27. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

Janis 27 frumsýnd í Íslensku óperunni 3. október

Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í nýju verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Janis 27, sem verður frumsýnt í Íslensku óperunni 3. október næstkomandi. Verkið byggir á stuttu en litríku lífshlaupi söngkonunnar, sem lést af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970.

Hrá og innblásin tónlist Joplin skipar stóran sess í verkinu og bregður fjögurra manna rokkband undir stjórn Jóns Ólafssonar sér í hlutverk hljómsveita Janisar Joplin á ferlinum.

Hinar góðkunnu Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir munu túlka söngkonuna í sýningunni í söng og tali, í leikstjórn reynsluboltans Sigurðar Sigurjónssonar. Leikmynd hannar Finnur Arnar Arnarsson, búninga hannar Þórunn E. Sveinsdóttir og lýsingu Björn Bergsteinn Guðmundsson.

 

Ekki missa af því þegar rokkið heldur innreið sína í Óperuna!

 

 

Aðstandendur sýningarinnar:

 

Leikstjóri: Sigurður Sigurjónsson – s. 897 3110

Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson – s. 691 9600

Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson – s. 899 5590

Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir – s. 893 0752

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson – s. 892 8069

 

Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson – s. 899 0633 

                  

Leikendur: Bryndís Ásmundsdóttir – s. 847 9911 og Ilmur Kristjánsdóttir – s. 696 4350

  

Kristallinn hefst á morgun

26. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

Kammertónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2008-2009

Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika kammertónlist úr ýmsum áttum á Kammertónleikaröðinni Kristall sem haldin er í bókasal Þjóðmenningarhússins. Fyrstu tónleikar Kristalsins í vetur eru laugardaginn 27. september kl. 17.00.

 

BANDARÍSKT BRASS
Á efnisskrá er:

Kvintett fyrir málmblásara eftir Alvin Etler

Kvintett eftir Áskel Másson

Tónlist fyrir málmblásturshljóðfæri eftir Ingolf Dahl

Dæmisaga fyrir málmblásturskvintett eftir Vincent Persichetti

Lítill forleikur eftir Witold Lutoslawski.

 

Flytjendur eru: Eiríkur Örn Pálsson, trompet, Einar St. Jónsson, trompet, Emil Friðfinnsson, horn, Sigurður Þorbergsson, básúna og Tim Buzbee, túba.

 

Hægt er að kaupa miða við innganginn en einnig í miðasölu hljómsveitarinnar í Háskólabíói. Miðaverð er 1.700 kr.

 

 

Íslenskir tónar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands

25. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

Eldur og ís er yfirskrift næstu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem verða í Háskólabíói föstudaginn 26. september. Þar gefur að heyra verk sex íslenskra tónmeistara tuttugustu aldarinnar þar sem fjölbreytni, fegurð og hugmyndaauðgi eru grunntónarnir.

Tilefni tónleikanna er fyrirhuguð tónleikaferð hljómsveitarinnar til Japan, en auk íslenskrar tónlistar verða m.a. annars allar sinfóníur Sibeliusar fluttar í þessari ríflega þriggja vikna löngu ferð.

Tveir meðlimir hljómsveitarinnar leika einleik á tónleikunum. Ari Þór Vilhjálmsson fer með einleikshlutverkið í verðlaunaverki  Hafliða Hallgrímssonar, Poemi, og Hallfríður Ólafsdóttir spilar á flautu í undurfögru divertimentói Þorkels Sigurbjörnssonar, Kólumbína.

Þá verða á dagskránni Þrjú óhlutræn málverk eftir Jón Leifs, Rún eftir Áskel Másson og ballettinn Eldur eftir Jórunni Viðar. Tónleikunum lýkur á hinu vinsæla Icerapp eftir Atla Heimi Sveinsson. Stjórnandi á tónleikunum er Petri Sakari, en hann mun leiða hljómsveitina í Japansferðinni.

Hallfríður Ólafsdóttir hefur verið fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1997 og leikið einleik með hljómsveitinni, m.a. í flautukonsertum eftir Carl Nielsen og Einojuhani Rautavaara. Hún hefur leikið með fjölmörgum hljómsveitum heima og erlendis og var bæjarlistamaður Garðabæjar 2003.

Ari Þór Vilhjálmsson var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum Bjartasta vonin árið 2004 og hefur komið víða fram sem einleikari. Hann  er eini Íslendingurinn sem hefur verið konsertmeistari samnorrænu ungmennahljómsveitarinnar Orkester Norden og tók þátt í heimsreisu Bjarkar Guðmundsdóttur sem meðlimur Íslenska strengjaoktettsins 2003.

Þá verða á dagskránni Þrjú óhlutræn málverk eftir Jón Leifs, Rún eftir Áskel Másson og ballettinn Eldur eftir Jórunni Viðar. Tónleikunum lýkur á hinu vinsæla Icerapp eftir Atla Heimi Sveinsson.

ID LAB greining sjálfsmyndar

24. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

27. SEPTEMBER KL. 16 í Hafnarhúsi

TÍSKUKLEINUR – ÁSTARPUNGUR – HIV-VEIRA – ÍMYNDAÐIR VINIR – UGLUSPEGILL – TÍÐARANDINN – DRAUGUR – AUGNAYNDISFÓLK – BRÚÐARKJÓLL – NÆRFATNAÐUR – HAUSKÚPA – MANTRA

Það er kraftmikill hópur sem kemur saman á sýningunni ID-LAB í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem fjallar um sjálfsmynd og tísku frá ólíkum sjónarhornum. Þetta eru Gjörningaklúbburinn, Hrafnhildur Arnardóttir, Huginn Þór Arason, Jón Sæmundur Auðarson og Katrín Ólína Pétursdóttir en þau hafa mörg hver vakið alþjóðlega athygli fyrir verk sín. Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir.

Sýningin verður opnuð laugardaginn 27. september kl. 16:00 en kl. 17:00 verður Gjörningaklúbburinn með gjörning í fjölnotasal Hafnarhússins.

ID-LAB er sýning á verkum listamanna sem nota kraftmikil auðkenni tísku og hönnunar til að skoða tíðaranda samtímans. Listamennirnir eru allir þekktir fyrir vinnu sína sem myndlistarmenn en hafa einnig flestir unnið að verkefnum á sviði hönnunar og þannig haft áhrif á tísku og tíðaranda með eigin framleiðslu, samstarfi við þekkt tónlistarfólk eða alþjóðleg hönnunarfyrirtæki. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt og afar einkennandi fyrir listamennina en í þeim liggur rauður þráður sem snertir ímynd og tísku, fortíð, nútíð, klisjur, klassík, drauma og veruleika.

Sýningunni er fylgt úr hlaði með einstökum hönnunar- og prentgrip sem unninn er af Gunnari Þór Vilhjálmssyni hönnuði og verður dreift ókeypis á sýningunni.

GJÖRNINGAKLÚBBINN skipa Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir sem hafa starfað saman frá árinu 1996. Á sýningunni persónugera þær Tíðarandann; hann trónir yfir öllu, mylur undir sig fortíðina og skyggnist yfir nútímann. Tískukleinan fellur seint úr gildi og leikur sitt hlutverk ásamt hinum margræða ástarpung. Sjálfsmynd listamannanna birtist svo í einstökum, sexfættum skúlptúr.

HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR (aka Shoplifter) er kunn fyrir tilkomumiklar innsetningar úr hári en hún átti nýlega verk á MOMA listasafninu í New York. Á sýningunni hefur Hrafnhildur myndgert ímyndaða vini sem hafa birst henni undanfarið. Vinirnir eru misjafnir að lögun og gerð en eiga það sammerkt að vera augnayndisvinir, fallega hærðir og skarti prýddir.

HUGINN ÞÓR ARASON er listamaður og einn af aðstandendum Nýlistasafnsins. Allt sýningartímabilið verða nemar úr klæðskeradeild Tækniskólans að störfum til að útfæra verk hans sem felst í því að sauma flíkur á gesti. Huginn hefur fengið að láni snið af fatnaði, sem kunnir listamenn og hönnuðir hafa búið til á sjálfa sig. Hinum verðandi skröddurum hefur hann síðan falið að sauma eftir þeim, af handahófi, fatnað á gesti. Flíkurnar spanna allt frá brúðarkjól til nærfatnaðar.
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON er myndlistarmaður sem hefur haft mikil áhrif á reykvíska götutísku. Myndlistarverk hans sem byggt er á hauskúpu og texta hefur orðið að nokkurs konar vörumerki sem borið hefur hugmyndfræði listamannsins langt út fyrir myndlistarheiminn og haft áhrif á tískustrauma samtímans.  Slagorð Jóns Sæmundar -Sá sem óttast dauðann kann ekki að njóta lífsins-  endurspeglar persónulega stöðu hans sem HIV – smitaðs einstaklings sem samið hefur frið við dauðann en lifir heilbrigðu lífi af krafti og óttaleysi.


KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR
er hönnuður sem hefur verið virk á alþjóðlegum vettvangi og unnið fyrir mörg af þekktustu hönnunarfyrirtækjum heims. Verk hennar á sýningunni er hjúpað ævintýraljóma en hún hefur þakið veggi og gólf með draumkenndu myndverki þar sem bregður fyrir ólíkum fyrirbærum, fígúrum, erkitýpum og dýrum sem margar hverjar eru tilvísanir í táknmál myndlistar. Yfir og allt um kring ríkja svo hin sívökulu ugluaugu. Verk Katrínar var framleitt og uppsett af 3M og Merkingu en Caoz sá um myndbandsgerð.

Sunnudaginn 28. september kl. 15:00 mun Hrafnhildur Arnardóttir taka þátt í leiðsögn um sýninguna.

Næstkomandi laugardag hefst annar hluti sýningaraðar D-salar Hafnarhússins með sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur.
Fyrri hluta sýningaraðrinnar lauk í maí síðastliðnum en þá höfðu átta listamenn kynnt verk sín í salnum. D-sýningaröðinni er ætlað að efla unga og efnilega listamenn og gefa þeim tækifæri til að kynna verk sín á einkasýningu í opinberu safni. Fyrri sýningaröðinni lauk með útgáfu sýningarskrár með verkum sýnendanna auk þess sem Listasafn Reykjavíkur stóð fyrir málþingi um stöðu yngri list amanna í samtímanum.

Á sama tíma verður opnuð sýningin D-9 í D-sal Hafnarhússins á verkum JÓNU HLÍFAR HALLDÓRSDÓTTUR
Í innsetningum sínum vinnur Jóna Hlíf með skúlptúra, myndbönd, málverk og texta en innsetning hennar í D-salnum nefnist Plenty of Nothing. Jóna Hlíf er fædd í Reykjavík 1978 og lauk diploma prófi árið 2005 og MFA árið 2007 frá Glasgow School of Art. Hún er sýningarstjóri VeggVerk og Gallerí Ráðhús og hefur rekið GalleriBOX á Akureyri frá árinu 2005. Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.

Sýningin verður opnuð á sama tíma og ID-LAB og stendur til 9. nóvember.

AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT

 

Einar Jóhannesson og Martin Berkofsky

24. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

í Salnum á laugardaginn kl. 17

Draumar, dulhyggja og þjóðlegir tónar er yfirskrift Töfratónleika Einars Jóhannessonar klarínettuleika og Martins Berkofskys píanóleikara í Salnum á laugardaginn kl. 17. Efnisskráin er fjölbreytt, m.a. leika þeir verk eftir Schumann, Þorkel Sigurbjörnsson, Brahms, Howhaness og Beethoven.

Martin Berkofsky er hreint ævintýralegur píanisti. Hann hefur ekki spilað á Íslandi í 20 ár, en það muna margir eftir honum frá því að hann bjó hér á landi.  Árið 1982 lenti hann í mótorhjólaslysi hér heima og fór fljótlega af landi brott. Hann var allur negldur saman en var farinn að spila á tónleikum nokkrum vikum síðar. Slysið breytti lífi Martins. Hann var svo þakklátur fyrir lífgjöfina auk þess sem hann lifði af krabbamein árið 2000, að hann ákvað að helga líf sitt góðgerðarstarfsemi það sem eftir væri. Hann kemur aðeins fram á styrktartónleikum og spilar ekki lengur fyrir peninga handa sjálfum sér, heldur rennur allur ágóði til góðgerðarmála. Eftir krabbameinsmeðferðina ákvað hann að hefja maraþonhlaup. Hann hljóp t.d. frá Tulsa í Oklahoma til Chicago og safnaði nógu miklu fé til að kaupa krabbameinsleitartæki handa sjúkrahúsinu í Tulsa þar sem hann hafði fengið lækningu. „Það eru stórir og miklir andar með Martin – hann er ekki alveg af þessum heimi”, segir Einar Jóhannesson.

Einar hefur spilað mikið með Martin í gegnum tíðina. „Martin hefur inspírerað mig. Þegar mikið liggur við og ég get aðstoðað hann spila ég með honum og legg honum lið í þessu kærleiksríka starfi. Ég fæ líka mikið út úr því að geta notað listina til að styrkja góð málefni. Martin er í þessu af lífi og sál og þegar mér bauðst að halda tónleikana í TÍBRÁ í SALNUM núna í september, fannst mér alveg rakið að fá hann heim”.

KAMMERTÓNLISTARHÁTÍÐ

24. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

TRIO NORDICA Á KJARVALSSTÖÐUM

Trio Nordica og Listasafn Reykjavíkur hafa gengið til samstarfs um árvissa kammertónlistarhátíð á Kjarvalsstöðum. Fyrsta hátíðin í þessu samstarfi fer fram dagana 27. og 28. september.
Trio Nordica er skipað þeim Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Monu Kontra píanóleikara. Í tilefni af hátíðinni hefur Tríóið fengið til liðs við sig kunna listamenn; þau Huldu Björk Garðarsdóttur sópransöngkonu, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara, Pálínu Árnadóttur, fiðluleikara og Þórunni Ósk Marínósdóttur víóluleikara.

LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER KL. 15:00
Hátíðin hefst laugardaginn 27. september kl. 15:00 með flutningi Trio Nordica á passacagliu fyrir fiðlu og selló eftir Händel, þá píanókvintett í e-moll eftir Elfrida Andrée og að lokum píanókvintett í Es-dúr eftir Robert Schumann. Með tríóinu koma einnig fram Pálína Árnadóttir fiðluleikari og Þórunn Ósk Marínósdóttir víóluleikari.

SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER KL. 20:00
Dagskrá á síðari degi hátíðarinnar hefst kl. 20:00. Þá flytja gestir hátíðarinnar þær Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari ljóð eftir Robert Schumann og Clöru Schumann. Einnig er á dagskrá tónleikanna fantasie í f-moll eftir Franz Schubert og píanótríó í e-moll eftir Antonín Dvorak.

Trio Nordica hefur nýlokið upptökum á geisladisk á verkum eftir Elfridu Andrée, sem INTIM musik í Svíþjóð mun gefa út.  Sum verkanna hafa ekki áður verið gefin út á disk. Framundan er fjöldi tónleika  með Trio Nordica hérlendis og erlendis.

Það er sameiginlegt markmið Trio Nordica og Listasafns Reykjavíkur að samtvinna myndlist og tónlist og auðvelda almenningi aðgengi að báðum listformum. Kaffistofa Kjarvalsstaða verður opin báða tónleikadagana. Miðalsala er við innganginn en aðgangur er ókeypis fyrir börn og nemendur. 

 

Reykvíska eldhúsið

23. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

- matur og mannlíf í hundrað ár

Félagið Matur-saga-menning efnir til sýningar um mat og mataræði Reykvíkinga á 20 öld. Sýningin ber nafnið Reykvíska eldhúsið – matur og mannlíf  í hundrað ár. Sýningin verður opnuð formlega kl. 17, föstudaginn 26. september, í Aðalstræti 10, elsta húsi Reykjavíkur og í hjarta miðbæjarins. Markmið sýningarinnar er að bjóða Reykvíkingum og öðrum gestum að fræðast, njóta og bragða á lítt þekktri matarsögu

höfuðborgarinnar. Miðstöð munnlegrar sögu efndi til söfnunarátaks þar sem munnlegum heimildum var sérstaklega safnað fyrir sýninguna.

Framkvæmdastjóri sýningarinnar er Sólveig Ólafsdóttir og sýningarhönnuður er Ólafur Engilbertsson. Ýmsir viðburðir munu tengjast sýningunni og má þar sérstaklega nefna

þematengdar leiðsagnir þar sem gælt verður við bragðlauka gesta.

Ráðstefnan Af hlaðborði aldarinnar – Áfangar og áræðni í íslenskri matarmenningu verður í Iðnó, laugardaginn 27. september 2008, frá 14.00-17.00. Er hún haldin í samstarfi við Sagnfræðingafélag Íslands og Reykjavíkur Akademíuna. Að ráðstefnunni lokinni verður efnt til hátíðarkvöldverðar í gömlum anda.

 

Reykvíska eldhúsið

Matur og mannlíf í hundrað ár

Sýningin er í Aðalstræti 10

og verður opin

frá 26. september – 23. nóvember 2008.

Opnunartími er frá 9-18.

Á fimmtudagskvöldum er opið til kl. 22.

Laugardaga og sunnudaga er opið frá 12 – 17.

Leiðsögn um sýninguna verður

á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20.00.

Nánari upplýsingar gefur Sólveig Ólafsdóttir, solveig@simnet.is, s. 8921215.

Málþing um Einar Braga

23. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

í Þórbergssetri 18. – 19. október

Málþing um Einar Braga rithöfund og verk hans verður haldið í Þórbergssetri 18. – 19. október næstkomandi.
 
Málþingið hefst kl 14:00 á laugardegi og verða fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar. Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Steinum og á Sléttaleiti og skoðaðar búsetuminjar. Einar skrifaði þrjár bækur með fróðleik um Suðursveit undir heitinu, Þá var öldin önnur,  þar er m.a. fjallað um búskaparhætti á Sléttaleiti á fjórða áratug síðustu aldar. Þar bjó þá Sveinn Einarsson móðurbróðir Einars, en Einar dvaldi hjá þeim hjónum á Sléttaleiti um tíma. 
 
Guðrún Sveinsdóttir frá Sléttaleiti endurbyggði bæjarhúsin á Sléttaleiti í minningu foreldra sinna og ánafnaði síðan Rithöfundasambandi Íslands  húsið til minningar um Einar Braga. Þar eru ýmsar minjar sem tengjast skáldinu og verkum hans sem gaman er að skoða. Áður hafði Einar Bragi haft forgöngu um að endurbyggja smiðjuna á Sléttaleiti til að framfylgja heiti Sveins, smiðjan gæti verið að grunni til sú sama og Ingimundur Þorsteinsson forfaðir Kvískerjabræðra byggði þar,  en hann flutti bæinn frá Steinum að Sléttaleiti árið 1829 eftir stórflóð og grjóthrun úr fjallinu.
 
Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri. Á sunnudeginum heldur dagskrá áfram til kl. 15:00.
 
Haustþing Þórbergsseturs eru nú árlegur viðburður og hefur alltaf verið góð aðsókn. það er von okkar að sem flestir leggi leið sína í Suðursveit þessa helgi til að njóta skemmtunar, fróðleiks og útiveru.

 
Hægt verður að fá gistingu á Hala, hali@hali.is sími 478 1073, á Gerði sími 478 1905 og á Smyrlabjörgum sími 478 1074.
Allir velkomnir

Fram og til baka

22. september 2008 · Fært í Fréttir ·  

kammertónleikar í Þjóðmenningarhúsinu

Miðvikudaginn 24. september kl. 20 hefst vetrartónleikaröð kammerhópsins Nordic Affect í Þjóðmenningarhúsinu með tónleikum sem bera yfirskriftina Fram og til baka. Efnisskráin verður fjölbreytt og tileinkuð tilbrigðatónsmíðum. Flakkað verður um í tíma og flutt allt frá tilbrigðum 17. aldar fiðlarans David Mell við lagið John Come Kiss Me til tveggja nýrra tónsmíða eftir Gunnar Andreas Kristinsson (f. 1976). Verk Gunnars eru samin sérstaklega fyrir NoA og byggja tónsmíðarnar á hringitónum.

Gunnar Andreas Kristinsson hefur verið áberandi meðal tónskálda af ungu kynslóðinni. Hann lauk mastersgráðu í tónsmíðum frá Konunglega Konservatoríinu í Haag árið 2004 og í vor lauk hann námi frá Sonology stofnuninni í Haag.

Kammerhópurinn Nordic Affect hefur á tónleikum sínum á Íslandi og erlendis flutt allt frá danstónlist 17. aldar til raftónsköpunar nútímans. Hópurinn hefur fengið afbragðs dóma og vakið athygli fyrir stílinnlifun og þróttmikinn leik. Listrænn stjórnandi er Halla Steinunn Stefánsdóttir. Hópurinn er nýkominn úr tónleikaferð til Hollands og mun síðar í mánuðinum taka upp nýja tónsmíð eftir Huga Guðmundsson sem gefin verður út á vegum Sambands Evrópskra Útvarpsstöðva á næsta ári.

Tónleikarnir í Þjóðmenningarhúsinu eru styrktir af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og Musica Nova.

Miðaverð er 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir námsmenn og eldri borgara. Miðar verða seldir við innganginn.

 

Næsta síða »