BLÁSARAR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Á KJARVALSSTÖÐUM 3. SEPT. KL. 20
C A R I O N
BLÁSARAR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
KJARVALSSTÖÐUM, MIÐVIKUDAGINN 3. SEPTEMBER KL. 20:00
Þriðju tónleikar tónleikaraðarinnar Klassík á Kjarvalsstöðum verða haldnir miðvikudaginn 3. september kl 20.00. Að þessu sinni verður boðið upp á einn frægasta blásarakvintett heims, hinn dansk-ættaða Carion blásarakvintett.
Carion kvintettinn stofnuðu fimm framúrskarandi ungir blásarar árið 2002 sem deildu með sér sameiginlegri sýn á þróun kammertónlistar og flutnings hennar. Tónleikar kvintettsins eru einstök upplifun bæði hvað varðar gæði flutningsins og tengslin sem hópurinn leitast við að mynda við áheyrendur. Kvintettinn dregur á sjónrænan hátt fram meginlínur verkanna með hreyfingum sem styðja við tónlistina. Til að gera þetta mögulegt læra allir meðlimir hópsins tónlistina utan bókar og spila saman nótnalaust.
Fyrir leik sinn og sviðsframkomu hefur Carion hlotið verðlaun á alþjóðlegum vettvangi og í Danmörku þar sem kvintettinn er í hópi allra bestu kammertónlistarhópa landsins.
Carion hefur gert fjölda upptaka fyrir útvarp og sjónvarp og komið fram á ýmsum þekktum tónlistarhátíðum s.s. Hróarskeldu, Wundergrund og SPOT.
Á tónleikunum verða flutt verk eftir Johann Sebastian Bach, Franz Ignaz Danzi, Antonio Rosetti, Maurice Ravel, Paul Hindemith og Edward Elgar.
Það er mikill heiður fyrir röðina að fá þennan frábæra kvintett til að koma fram á Íslandi í fyrsta sinn og eru tónleikarnir tækifæri sem enginn unnandi góðrar tónlistar má láta fram hjá sér fara. Kvartettinn kemur í boði Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) í gegn um samstarf félagsins við önnur norræn einleikarafélög.
Tónleikaröðin Klassík á Kjarvalsstöðum er samvinnuverkefni FÍT og Listasafns Reykjavíkur. Aðgangseyrir er 1.500 kr. en frítt er inn fyrir fólk að 21 árs aldri og alla tónlistarnema þar að auki.
Opið hús á sunnudag
![]() |
| Úr söngleiknum Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk. |
í Borgarleikhúsinu 14 – 17
Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum klukkan 2 á sunnudag með miklum lúðrablæstri og fjöri. Húsið mun iða af lífi og fólk á öllum aldri getur upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru starfsfólki. Leikarar, leikstjórar og tæknifólk verður við störf á öllum sviðum hússins; ýmist við æfingar eða sýningar, eða til þess að svara spurningum sem brenna á forvitnum leikhúsgestum. Nýlega var starfsár Borgarleikhússins kynnt og óhætt er að segja að viðtökur hafi farið fram úr björtustu vonum. Áskrifarsala er þegar orðin meiri en undanfarin ár og sala á einstakar sýningar, svo sem Fló á skinni, hefur slegið fyrri met.
Það mun engum leiðast á opnu húsi Borgarleikhússins, hægt verður að fylgjast með æfingum á söngleiknum Fólkið í blokkinni, eftir Ólaf Hauk Símonarson, snjallasta farsa allra tíma, Fló á skinni, barnaleikritinu sívinsæla Gosa, sem tekið verður aftur til sýninga í skamman tíma, Vestrið eina eftir Martin McDonagh, og Duo, dansverki sem Íslenski Dansflokkurinn frumflytur í haust og margt, margt fleira.
Í skoðunarferðum um húsið er margt forvitnilegt að sjá, hver veit hvað gerist á leiðinni um smíðaverkstæðið, búningadeildina eða í sminkherbergin, hvað á sér stað undir sviðinu, eða í herbergi leikaranna baksviðs?
Í forsal leikhússins mun hljómsveitin Geirfuglarnir leika ásamt fjölda leikara hússins auk þess sem ýmsar óvæntar uppákomur munu gleðja augu og eyru gesta.
Vöfflur og kaffi eru í boði hússins og börnin verða leyst út með blöðrum. Glæsilegt starfsár er framundan og að sjálfsögðu verður hægt að kaupa áskriftir og staka miða í miðasölu.
Allir velkomnir á opið hús í Borgarleikhúsinu, sunnudaginn 31. ágúst á milli kl. 14 og 17.
Myndlistin um helgina
![]() |
| Gullfoss eftir Daníel Þorkel Magnússon á Kjarvalsstöðum. |
Start Art, Laugavegi 12b: Sex einkasýningar voru opnaðar í gær. Þau sem sýna eru Anna Eyjólfsdóttir, Magnús Pálsson, Magnea Ásmundsdóttir, Ásdís Spano, Harpa Dögg Kjartansdóttir og Didda Hjartardóttir Leaman. Sýningum lýkur 24.9.
Listasafn ASÍ: Á morgun kl. 15 opnar Sólveig Aðalsteinsdóttir sýningu á teikningum, ljósmyndum og viðarskúlptúrum. Umfjöllunarefnið er umhverfi og taktur hins hversdagslega lífs. Sýningin stendur til 28.9. og sunnudaginn 14. september ræðir Sólveig um verk sín í safninu.
Listasafn Íslands: Úr safneign. Á árlegri sumarsýningu LÍ er lögð áhersla á ólík tímabil í íslenskri nútíma- og samtímalist. Í hverjum hluta sýningarinnar er dregið fram ákveðið tímabil í stuttri sögu íslenskrar listar, frá því hún var viðurkennd sem fagleg iðja, og ljósi varpað á ýmis tilbrigði í þróun hennar út frá áhrifum samsvarandi þjóðfélagsbreytinga og stílbrigða. Sýningarstjóri er Halldór Björn Runólfsson og sýningin stendur til loka september. Leiðsögn á sunnudaginn kl. 14 í fylgd Kristínar Arngrímsdóttur myndlistarmanns.
Listasafn Árnesinga Hveragerði: Þar stendur yfir sýning á verkum helsta fuglamálara landsins, Höskuldar Björnssonar. Henni lýkur 28.9. en núna á sunnudaginn kl. 15 talar safnstjórinn, Inga Jónsdóttir, um Höskuld og verk hans.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Þar stendur yfir sýningin Skovbo á ljósmyndum Viggos Mortensen fjöllistamanns. Henni átti að ljúka núna um helgina en hún verður framlengd til 7.9. vegna gífurlegra vinsælda. Þeir fjölmörgu sem keyptu mynd af Viggo verða að bíða enn um sinn eftir að fá þær afhentar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir: Á sunnudag lýkur hinni vel heppnuðu sýningu Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist. Er fólki eindregið ráðlagt að missa ekki af henni.
Á sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins sem byggja á ólíkum hugmyndum þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmynda- og vídeólist. Sýningin var opnuð á Listahátíð fyrr á þessu ári og hefur hlotið góða aðsókn og verðskuldaða athygli innanlands og utan.
Sýningin spannar allt frá ljósmyndum frá fyrri hluta tuttugustu aldar til innsetninga eftir ung en vel þekkta íslenska listamenn. Listamennirnir eru Anna Hallin, Daníel Þorkell Magnússon, Gjörningaklúbburinn, Halldór Ásgeirsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guðmundsson, Ólafur Elíasson, Olga Bergmann, Pétur Thomsen, Ragnar Kjartansson, Sigurður Guðjónsson, Spessi og Vigfús Sigurgeirsson. Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir. Leiðsögn er um sýninguna á sunnudaginn kl. 15.
Gallerí Turpentine: Þar standa yfir tvær sýningar. Karólína Lárusdóttir sýnir í aðalsal, í baksal eru teikningar og málverk eftir Karl Kvaran. Sýningarnar standa til 6. september.
Spekingurinn Einar Áskell
![]() |
ný brúðuleiksýning í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir, í samvinnu við Fígúru – leikhús Bernds Ogrodniks, brúðuleiksýninguna Klókur ertu, Einar Áskell nk. laugardag, 30. ágúst. Gestaleikur þessi er verk brúðugerðarmannsins Bernds Ogrodniks sem byggir á heimsþekktum sögum Gunillu Bergström um þennan uppátækjasama snáða. Sýnt verður í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins á Lindargötu 7 og hefst sýningin kl. 15.
Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en þegar pabbi hans tekur sér tíma og leikur við hann. Það næst skemmtilegasta er að fá að leika sér með verkfærakassann, en það er stranglega bannað og stórhættulegt að leika sér með sögina! Nokkrar gamlar spýtur og verkfæri geta leitt ungan mann inn í ævintýraheim. En allir skemmtilegir dagar taka enda og þá þarf maður að hátta sig og fara að sofa. En það getur verið erfitt að festa blund þegar hugurinn er enn uppfullur af ævintýrum dagsins.
Brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik hefur sett upp sýningar víða um heim en auk þess að semja og sýna brúðusýningar þá býr hann til brúður, gerir leikmynd og semur og flytur tónlist. Bernd hefur gert brúður af ýmsu tagi, bæði fyrir leikhús og kvikmyndir. Hér í Þjóðleikhúsinu hefur hann meðal annars sett upp sýningarnar Pétur og úlfinn og Umbreytingu – ljóð á hreyfingu.
Rithöfundurinn Gunilla Bergström hafði samband við Bernd og hafði áhuga á að vinna með honum að skemmtilegu verkefni tengdu Einari Áskeli. Afraksturinn er sýningin Klókur ertu, Einar Áskell en sýningin er byggð á bókunum Svei-attan, Einar Áskell og Góða nótt, Einar Áskell. Bernd hannar og stýrir brúðum í sýningunni auk þess að gera leikmynd hennar, leikstjóri er Kristján Ingimarsson en búninga hannar Helga Björt Möller.
Sýningin er styrkt af Menntamálaráðuneytinu, Menningarsjóði Eyþings, Barnamenningarsjóði og Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur.
VIÐ SLAGHÖRPUNA Í SALNUM
![]() |
Jónas Ingimundarson kynnir nýtt starfsár
Jónas Ingimundarson er löngu landsþekkur fyrir sínar gagnmerku tónlistarkynningar. Í tilefni af 10 ára afmæli Salarins býður hann gestum og gangandi til kvöldstundar VIÐ SLAGHÖRPUNA Í SALNUM næstkomandi þriðjudagskvöld 2. september kl. 20. Þar kynnir hann tónleikaröðina TÍBRÁ og komandi starfsár í Salnum með spili og spjalli eins og honum einum er lagið. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Síðustu tónleikar sumarsins á Gljúfrasteini
![]() |
Gunnar Kvaran leikur Bach
Gunnar Kvaran sellóleikari mun sunnudaginn 31. ágúst kl. 16:00 halda síðustu stofutónleika sumarsins á Gljúfrasteini. Meðleikari á píanó er Haukur Guðlaugsson.
Tónleikaröð Gljúfrasteins hefur gengið mjög vel í sumar og þakkar starfsfólk fyrir góða aðsókn og skemmtilega daga í sumar. Sem fyrr er aðgangseyrir aðeins 500 kr. og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Gunnar Kvaran sellóleikara þarf vart að kynna. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1944 og hóf tónlistarnám sitt við Barnamúsíkskólann í Reykjavík þar sem kennari hans var Dr. Heinz Edelstein. Síðar stundaði hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem kennari hans var prófessor Erling Blöndal-Bengtsson. Framhaldsnám stundaði hann hjá prófessor Reine Flachot í Basel.
Gunnar Kvaran er prófessor í sellóleik og kammertónlist við tónlistardeild Listaháskóla Íslands og kennir auk þess við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann stundar auk fastra starfa umfangsmikið tónleikahald bæði heima og erlendis. Hann hefur haldið einleiks og kammertónleika í mörgum Evrópulöndum, auk Bandaríkjanna og Kanada og m.a. komið fram í Wigmore Hall í London, Carnegie Hall í New York og í Beethoven Haus í Bonn.
Gunnar hefur margsinnis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og allmargar hljómplötur og hljómdiskar hafa verið gefnir út með leik hans. Hann hlaut verðlaun úr sjóði Dr. Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyrir tónlistarstörf og var valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1996. Mörg undanfarin sumur hefur hann ásamt konu sinni, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, verið gestur á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Bandaríkjunum. Sumurin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð í Grikklandi. Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sérstökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni, fæðingarbæ Pablo Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæðingu meistarans.Gunnar er ásamt Peter Máté og Guðnýju Guðmundsdóttur meðlimur í Tríói Reykjavíkur.
Thor Vilhjálmsson – list og starf
![]() |
Thor Vilhjálmsson er stór höfundur jafnt í íslensku sem alþjóðlegu samhengi. Í haust verður Ástráður Eysteinsson prófessor með námskeið um verk hans, auk þess sem gestir sem kunnugir eru list og starfi Thors koma í heimsókn og ræða við þátttakendur á námskeiðinu. Það hefst 22. sept. og skráning er hafin hjá www.endurmenntun.hi.is
Á þessu námskeiði verður fjallað um nokkur mikilvægustu skáldverk Thors og rætt um einkenni þeirra í ljósi bókmenntasögu síðustu áratuga. Jafnframt verður vikið að ferðabókum Thors og greinum hans um listir og menningu, en hann hefur á ferli sínum unnið mikið starf við miðlun erlendrar hámenningar hér á landi. Að hverju leitar hann erlendis og hverju vill hann veita hingað heim? Að hvaða leyti birtist þetta í þeim bókmenntaverkum sem hann hefur þýtt á íslensku? Slíkar spurningar verða einnig leiðarljós við athugun á skáldsögum Thors, en þær einkennast margar af ferðum um framandi slóðir. Einnig verður rýnt í stíl- og formeinkenni verkanna og reynt að veita innsýn í þann magnaða vef sem myndar og ber uppi skáldverk Thors.
Gróður og grafir í Hólavallagarði
![]() |
Á laugardaginn kemur efna Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastdæma til gönguferðar með leiðsögn um Hólavallagarð, gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu. Leiðsögnin er hluti af dagskrá Menningarnætur í Reykjavík árið 2008.
Heimir Björn Janusarson aðstoðargarðyrkjustóri KGRP og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða gönguna og vekja athygli á mörgum gullmolanum sem garðurinn geymir.
Gangan hefst við þjónustuhús garðsins, Ljósvallagötumegin, kl. 16.00.
Ljóðahátíð Nýhils 2008
![]() |
Dagskrá
Föstudagur 22. agúst
16:00-17:30 Setning ljóðahátíðar, móttaka í Norræna húsinu
20:00-23:00 Ljóðapartí # 1, Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Hanno Millesi, Morten Søkilde,
Ann Cotten, Linda Vilhjálmsdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Kári Páll Óskarsson,
Kristín Svava Tómasdóttir, Haukur Már Helgason og Una Björk Sigurðardóttir.
Tónlist: Ólöf Arnalds. Kynnar: Fræði & framkvæmd
Laugardagur 23. ágúst
[allir viðburðir þennan dag eru hluti af dagskrá Menningarnætur í Reykjavík]
13:00-14:30 Ljóðlistin í Ríki Sjoppunnar – málþing um samtímaljóðlist, Norræna húsinu.
Ármann Jakobsson og Birna Bjarnadóttir stýra umræðum ungra rithöfunda um list
þeirra og störf. Þátttakendur: Sureyyya Evren, Ida Börjel, Nina Søs Vinther, Morten
Søkilde, Ann Cotten Haukur Már Helgason, Eiríkur Örn Norðdahl og Kristín
Eiríksdóttir
18:00-19:00 Ljóðalestur – skandinavískir gestir hátíðarinn lesa upp, Norræna húsinu. Ida
Börjel, Morten Søkilde, Nina Søs Vinther
20:00-23:00 Ljóðapartí # 2, Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Sureyyya Evren, Ida Börjel, Nina
Søs Vinther, Eiríkur Örn Norðdahl, Örvar Þóreyjarson Smárason, Ragnar Ísleifur
Bragason, Jón Örn Loðmfjörð, Kristín Eiríksdóttir og Ingólfur Gíslason. Tónlist:
The Diversion Session. Kynnar: Fræði & framkvæmd
Sunnudagur 24. ágúst
14:00–16:00 Líf ljóðabókanna – málþing um óháða útgáfustarfsemi og ljóðabókaútgáfu á
Íslandi og erlendis, Þjóðminjasafninu. Jón Karl Helgason stýrir
pallborðsumræðum, en Sureyyya Evren og Nina Søs Vinther flytja stuttar
framsögur. Einnig sitja í pallborðinu Viðar Þorsteinsson og Silja Aðalsteinsdóttir.
Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Kristín Eiríksdóttir, myndlistarkona og skáld. Helstu
stuðningsaðilar eru Norræna húsið, Reykjavíkurborg, Clara Lachmanns fond og Prenstmiðjan Oddi. Í
tilefni hátíðarinnar kemur út veglegt þýðingarit, Gáttir/Gateways, í ritstjórn Kára Páls Óskarssonar.
RÚV tekur dagskrá hátíðarinnar upp í heild og gerir í kjölfarið skil í þáttum sem útvarpað verður á Rás
1. Frítt er inn á alla viðburði ljóðahátíðar Nýhils.
Auður og Gunnar á Tónlistarhátíð unga fólksins
![]() |
Auður Gunnarsdóttir sópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór og Andrej Hovrin píanóleikari, sem öll hafa haldið meistaranámskeið á Tónlistarhátíð unga fólksins, halda tónleika í Salnum í Kópavogi á morgun, sunnudag, kl. 16. Þetta eru síðustu tónleikar hátíðarinnar og efnisskráin er glæsileg:
Ludwig van Beethoven (1770-1827): An die ferne Geliebte
I. Auf dem Hügel sitz´ich
II. Wo die Berge so blau
III. Leichte Segler in den Höhen
IV. Diese Wolken in den Höhen
V. Es kehret der Maien
VI. Nimm sie hin denn, diese Lieder
Alban Berg (1885-1935): Siben frühe Lieder
I. Nacht
II. Schifflied
III. Die Nachtigall
IV. Traumgekrönt
V. Im Zimmer
VI. Liebesode
VII. Sommertage
Jean Sibelius (1865-1957): Den första kyssen op. 37. nr. 1
Svarta Rosa op. 36. nr. 1
Flikan kom ifrån sin älskings möte op. 37. nr. 5
Carl Maria von Weber (1786-1826): Durch die Wälder durch die Auen úr Der Freischütz
Pietro Mascagni (1863-1945): Voi lo sapete, o mamma úr Cavalleria Rusticana
Giuseppe Verdi (1813-1901): Parigi, o cara, dúett úr La Traviata
Nánari upplýsingar Tónlistarhátíð unga fólksins má finna á www.musicfest.is








