Heimasíða TMM opnuð aftur
![]() |
Svo hörmulega vildi til að TMM lenti í vanskilum við Skýrr fyrir klaufaskap og misskilning og hefur síðan verið lokuð í nærri tvær vikur. Nú er búið að greiða úr þessum málum sem betur fer og síðan komin aftur í loftið. Fréttin hér næst á eftir er auðvitað löngu útrunnin, en næstu tónleikar á Gljúfrasteini verða sunnudaginn 3. ágúst. Þá koma fram Ingibjörg Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson og Ómar Guðjónsson sem kalla sig Ó Ó Ingibjörg.
Ó Ó Ingibjörg
Sunnudaginn 3. ágúst kl. 16 mun systkinatríóið Ó Ó Ingibjörg halda tónleika í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Systkinin Óskar, Ómar og Ingibjörgu Guðjónsbörn þarf vart að kynna en þau hafa auðgað íslenskt tónlistarlíf undanfarin ár, Ingibjörg sem klassísk sópransöngkona en Óskar, saxófónleikari og Ómar, gítarleikari í jass- og dægurlagamenningu sl. ára.
Í fjársjóði íslenskra sönglaga hafa systkinin fundið sameiginlegan vettvang þar sem þau eru trú sínum leikmáta og heillandi hljóðheimur ólíkra tónlistarstefna fá að njóta sín í söngperlum liðinna ára auk frumsamdra laga eftir þá bræður Óskar og Ómar. Hljómdiskurinn Ó Ó Ingibjörg kom út í lok síðasta árs en auk þeirra þriggja spila Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Matthías M.D. Hemstock á trommur.
Á Stofutónleikum Gljúfrasteins munu þau systkini flytja efni af disknum auk þess að frumflytja lög eftir Óskar og Ómar við ljóð Halldórs Laxness.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.
Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.
Við viljum líka benda á að á morgun fimmtudag kl. 17 verða opnaðar tvær listsýningar í Start Art, Laugavegi 12b. Þar sýna hin spennandi listakona Magdalega Margrét Kjartansdóttir, Bandaríkjamaðurinn Creighton Michael, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir.
MAGDALENA MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR
SVART LIST í Forsal START ART
Magdalena Margrét er starfandi grafíklistamaður og hefur vakið athygli fyrir stór verk þrykkt á pappír. Verkin sem hún sýnir nú eru tréristur er fjalla um fórnina, eilífðina og endurfæðinguna. Hringrásina sem enga byrjun hefur, engan endi.
CREIGHTON MICHAEL
BYLGJULENGDIR á Loftinu í START ART
Creighton Michael sem býr og starfar í New York kom fyrst til Íslands 2004.
Hann vinnur verk sín í ýmsa miðla, en í öllum verkum sínum leggur hann fyrst og fremst áherslu á teikningu. Hann vinnur með liti og þrykk og teiknar á pappír, auk skúlptúrteikninga í ýmis efni.
Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar í START ART.
INGUNN FJÓLA INGÞÓRSDÓTTIR og ÞÓRDÍS JÓHANNESDÓTTIR
FLÖKT í austur- og vestursal jarðhæðar START ART.
Ingunn og Þórdís útskrifuðust báðar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007. Frá útskrift hafa þær deilt vinnustofu þar sem þær hafa orðið fyrir áhrifum af verkum hvor annarrar, þrátt fyrir að fást við ólíka miðla. Þær líta á sýninguna sem sjónræna rannsókn sem taka mun breytingum daglega, en með henni vilja þær vekja upp spurningar er varða sjónmenningu, frumleika, höfundarrétt og traust og ferli sköpunar gagnvart hinu fullkláraða verki.
Sýningum lýkur 27. ágúst.
Opnunartími START ART er þriðjudaga til laugardaga kl. 13 – 17 og eftir samkomulagi.
Saga flautunnar í tali og tónum
![]() |
Flautuleikararnir Hallfríður Ólafsdóttir og Magnea Árnadóttir segja frá þróun flautunnar í tali og tónum á Gljúfrasteini sunnudaginn 20. júlí kl. 16:00. Þær munu leika einleiks- og samleiksverk frá fyrstu dögum þverflautunnar til dagsins í dag og notast við hljóðfæri frá ýmsum tímum, barokkflautu og klassíska flautu auk nútímaflautunnar.
Á efnisskránni kennir ýmissa grasa, m.a. er Fantasía eftir Telemann, Sónata eftir Stamitz, Menúett og tríó eftir Beethoven, verkið „Samtal tveggja páfagauka” eftir Francaix og verk Elínar Gunnlaugsdóttur, „Spil”. Þær Hallfríður og Magnea hafa unnið saman um tíu ára skeið. Þær starfa báðar í flautudeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem Hallfríður er leiðari og báðar hafa þær lagt sig sérstaklega eftir leik á upprunahljóðfæri.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.
Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.
KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
![]() |
| Trío Nordica: fagrar og frábærar. |
![]() |
| Eyjólfur Eyjólfsson – einstakur söngvari. |
Frábærir flytjendur – stórkostleg verk …
Hinir árlegu Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri verða haldnir í átjánda sinn helgina 8. – 10. ágúst 2008. Tónlistarmennirnir í ár eru Ágúst Ólafsson baritónsöngvari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Trio Nordica, sem Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Mona Kontra píanóleikari skipa.
Ágúst Ólafsson var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2007 sem flytjandi ársins í sígildri og samtímatónlist. Ástríður Alda Sigurðardóttir hefur sannað að hún er einn af áhugaverðustu píanóleikurum yngstu kynslóðar íslenskra píanóleikara, bæði sem einleikari og í kammertónlist. Eyjólfur Eyjólfsson hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í óperu- og ljóðasöng hérlendis og erlendis. 1. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sigrún Eðvaldsdóttir, er þekkt bæði utanlands og innan fyrir framúrskarandi fiðluleik og magnaða sviðframkomu. Trio Nordica hefur á undanförnum fimmtán árum komið fram á fjölda tónleika vítt og breitt um Evrópu við einstakan orðstír. Allir meðlimir tríósins hafa unnið til margvíslegra verðlauna fyrir list sína og gert upptökur fyrir ýmis útgáfufyrirtæki, svo sem Japis, King Records, Bis og Naxos.
Föstudaginn 8. ágúst kl. 21:00 leikur Trio Nordica píanótríóið sem þekkt er undir nafninu Dumky eftir Dvořák, en eftir hlé flytja Eyjólfur Eyjólfsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir ljóðaflokkinn Dichterliebe (Ástir skáldsins) eftir Schumann.
Laugardaginn 9. ágúst kl. 17:00 flytja Ágúst Ólafsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir ljóðaflokkinn Songs of Travel (Ferðasöngva) eftir Vaughan Williams. Þá flytur Trio Nordica þrjú verk eftir Piazzolla og Sigrún Eðvaldsdóttir leikur virtúósaverkin Theme and Variations eftir Messiaen og Introduction og Rondo Capriccioso eftir Saint-Saëns.
Á lokatónleikunum, sunnudaginn 10. ágúst kl. 15:00, leikur Sigrún sónötu nr. 3, Ballade, eftir Ysaÿe, en Eyjólfur og Ágúst syngja aríur og dúetta úr óperum eftir Donizetti, Mozart, Bellini, Gounod og Bizet við undirleik Ástríðar Öldu. Að lokum flytur Trio Nordica píanótríó nr. 2 op. 67 eftir Shostakovich.
Tónleikarnir verða haldnir í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri. Miðaverð er 2.000 kr. fyrir eina tónleika, en 5.000 kr. fyrir þrenna tónleika. Miðaverð fyrir eldri en 66 ára er 1.900 kr. fyrir eina tónleika en 4.500 fyrir þrenna tónleika. Hægt er að panta miða í síma 487 4840 og 863 6106.
Vinsælt hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklausturs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar undir lok sumarsins og er fólki ráðlagt að panta gistingu í tíma. Listrænn stjórnandi er mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, en það er Menningarmálanefnd Skaftárhrepps sem stendur fyrir hátíðinni.
EFNISSKRÁ KAMMERTÓNLEIKA Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI 2008
FÖSTUDAGUR, 8.8. kl. 21:00
A. Dvořák (1841-1904) Píanótríó op. 90 (Dumky)
I Lento maestoso – allegro quasi doppio
II Poco adagio – vivace non troppo
III Andante – vivace non troppo
IV Andante moderato – allegretto scherzando
V Allegro
VI Lento maestoso – vivace
Tríó Nordica
Hlé
R. Schumann (1810-1856)
Dichterliebe op. 48 (Heinrich Heine)
-Im wunderschönen Monat Mai
-Aus meinen Tränen sprießen
-Die Rose, die Lilie, die Taube, die Sonne
-Wenn ich in deine Augen seh’
-Ich will meine Seele tauchen
-Im Rhein, im heiligen Strome
-Ich grolle nicht
-Und wüßten’s die Blumen
-Das ist ein Flöten und Geigen
-Hör’ ich das Liedchen klingen
-Ein Jüngling liebt ein Mädchen
-Am leuchtenden Sommermorgen
-Ich hab’ im Traum geweinet
-Allnächtlich im Traume seh’ ich Dich
-Aus alten Märchen winkt es
-Die alten, bösen Lieder
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
LAUGARDAGUR, 9.8. kl. 17:00
R. Vaughan-Williams (1872-1958)
Songs of Travel (Robert Louis Stevenson)
-The Vagabond
-Let Beauty awake
-The Roadside Fire
-Youth and Love
-In Dreams
-The infinite shining heavens
-Whither Must I Wander?
-Bright is the ring of words
-I have trod the upward and the downward slope
Ágúst Ólafsson, baritón
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
Hlé
A. Piazzolla (1921-1992)
Oblivión
Libertango
Escualo
Tríó Nordica
O. Messiaen (1908-1992)
Theme and Variations
C. Saint-Saëns (1835-1921)
Introduction og Rondo Capriccioso í a-moll, op. 28
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
SUNNUDAGUR, 10.8. kl. 15:00
E. Ysaÿe (1858-1931)
Sónata nr. 3 í d-moll: Ballade
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
G. Donizetti (1797-1848)
-Una furtiva lagrima
-Quanto é bella (úr Ástardrykknum)
W. A. Mozart (1756-1791)
Il mio tesoro (úr Don Giovanni)
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
W. A. Mozart
Deh vieni alla finestra (úr Don Giovanni)
V. Bellini (1801-1835)
Ah! Per sempre io ti perdei (úr I Puritani)
C. Gounod (1818-1893)
Avant de quitter ces lieux (úr Faust)
Ágúst Ólafsson, baritón
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
G. Bizet (1838-1875)
Au fond du temple sainte (úr Perluköfurunum)
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Ágúst Ólafsson, baritón
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
Hlé
D. Shostakovich (1908-1975)
Píanótríó nr. 2, op.67
I Andante – moderato – poco più mosso
II Allegro con brio
III Largo
IV Allegretto – adagio
Tríó Nordica
Ástríður Alda Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík árið 1980. Hún hóf nám í píanóleik 6 ára gömul hjá móður sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Vorið 1999 lauk hún einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000 til 2003 stundaði
hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University – Jacobs School of Music í Bloomington þar sem hún lauk Artist Diploma. Ástríður hefur sótt fjölmörg námskeið og einkatíma í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler. Til námsins hefur hún tvívegis fengið styrk úr minningarsjóði Birgis Einarssonar. Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum. Hún hefur leikið einleik með Jugendsinfonieorchester í Elbe-Weser, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Þá hefur hún komið fram á Listahátíð í Reykjavík, TÍBRÁ, Kristalnum; kammertónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Ljósanótt í Reykjanesbæ, Berjadögum á Ólafsfirði og Björtum dögum í Hafnarfirði.
Ágúst Ólafsson stundaði nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar hjá Eiði Á. Gunnarssyni og síðan við Sibelíusar Akademíuna hjá Jorma Hynninen og Sauli Tiilikainen. Ágúst hefur sótt fjölda námskeiða hjá frægum listamönnum á sviði ljóðasöngs m.a. Dietrich Fischer- Dieskau. Ágúst tók þátt í tvennum meistarakúrsum Elísabetar Schwarzkopf, sem voru sendir út í sjónvarpi í Þýskalandi, og sótti um tíma reglulega einkatíma hjá henni. Árið 2004 hlaut Ágúst ásamt Izumi Kawakatsu (pianó) önnur verðlaun í Ljóðasöngskeppni Hugo Wolf Akademíunnar. Á meðan á námi hans stóð söng Ágúst eftirfarandi hlutverk Don Giovanni (Mozart), Greifann (Brúðkaup Fígarós/Mozart), Posa (Don Carlos/Verdi) og Atla (Fjórði söngur Guðrúnar/Haukur Tómasson). Ágúst hefur sungið á ljóðasöngstónleikum víða m.a. í Philharmonie salnum (Berlín), Wigmore Hall (London) og í tónleikaröðinni Oktoberlied í Vantaa og Hugo Wolf Akademíu tónleikaröðinni í Stuttgart. Haustið 2004 debúteraði Ágúst í Íslensku Óperunni í titilhlutverkinu í Sweeney Todd, en hann er nú fastráðinn einsöngvari við þá stofnun. Nýlega söng hann þar hlutverk Nick Shadow í Flagaranum í Framsókn og Harlekin í Ariadne auf Naxos.
Eyjólfur Eyjólfsson lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar vorið 2002. Hann lauk meistaragráðu (MMus) og Postgraduate Diploma frá Guilhdall School of Music and Drama í London eftir þriggja ára framhaldsnám.
Eyjólfur hefur sungið með nafntoguðum hljómsveitum og píanóleikurum hér heima og erlendis, t.d. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Konunglegu sinfóníuhljómsveitinni í Sevilla þar sem hann söng tenórhlutverkið í óratoríunni Messías eftir Händel í Maestranza óperuhúsinu. Þá flutti hann ljóðaflokkinn Malarastúlkuna fögru eftir Schubert á tónlistarhátínni Islande-Provence í Esparron de Verdon ásamt píanóleikaranum Dalton Baldwin og ljóðatónleika í Tónleikasal Gnessin Tónlistarakademíunnar í Moskvu þar sem Eugene Asti var meðleikari hans.
Fyrsta sviðsreynsla Eyjólfs var sem hundurinn Spakur í söngleiknum Kolrassa eftir dr. Þórunni Guðmundsdóttur og fáeinum árum síðar þreytti hann frumraun sína á fjölum Íslensku óperunnar sem Skáldið í Skuggaleik Karólínu Eiríksdóttur og Sjóns. Á óperusviðum erlendis hefur hann sungið Sjómanninn í Dídó og Eneas hjá Opera North í Leeds, Liberto í Krýningu Poppeu hjá English National Opera í Lundúnum og Don Ottavio í Don Diovanni hjá English Touring Opera.
Sigrún Eðvaldsdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur í Barnamúsíkskólanum í Reykjavík. Hún lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og bachelor-gráðu frá Curtis-tónlistarháskólanum í Fíladelfíu árið 1988 þar sem hún lærði hjá Jaime Laredo og Jascha Brodsky. Samhliða námi þessu sótti hún einkatíma hjá hjónunum Almitu og Roland Vamos. Sigrún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna og m.a. unnið 2. verðlaun í Leopold Mozart-keppninni árið 1987, bronsverðlaun í Síbelíusar-keppninni árið 1990 og 2. verðlaun í Carl Flesch-keppninni árið 1992. Það sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hún var 1. fiðluleikari í Miami-strengjakvartettinum á árunum 1988-1990. Hún hefur komið víða fram sem einleikari og í kammertónlist, m.a. á Marlboro tónlistarhátíðinni í Vermont í Bandaríkjunum, L’emperi tónlistarhátíðinni í Aix-en-Provence og Sangat tónlistarhátíðinni í Bombay á Indlandi. Hún hefur komið fram sem einleikari á tónleikum í Weill Recital Hall í New York og Wigmore Hall í London. Árið 2005 flutti hún allar sónötur Beethovens fyrir fiðlu og píanó á Listahátíð í Reykjavík. Sigrún hefur yndi af að leika nýja tónlist og hafa nokkur tónskáld samið sérstaklega fyrir hana verk og tileinkað henni. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth: Violin Virtuosos from Paganini to the 21st Century sem kom út árið 1997 og einnig í tónlistartímaritinu Le Monde de la Musique árið 1998. Það ár var Sigrún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Hún hefur leikið inn á hljómdiska fyrir ÍTM, Steinar og Chandos. Sigrún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og hefur margoft komið fram sem einleikari með hljómsveitinni, síðast í fiðlukonserti Áskels Mássonar vorið 2006.
Trio Nordica var stofnað árið 1993 af Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Monu Kontra píanóleikara. Tríóið hefur komið fram á Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kanada við ýmis tækifæri, svo sem á tónleikaferðum og menningarviðburðum. Tríóið hefur margsinnis komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Allir meðlimir tríósins hafa unnið til margvíslegra verðlauna fyrir list sína, gert upptökur fyrir ýmis útgáfufyrirtæki, svo sem Japis, King Records, Bis og Naxos. Allar koma þær reglulega fram sem þátttakendur á kammertónleikum og sem einleikarar í heimalöndum sínum og erlendis.
Árið 1994 hlaut tríóið Menningarverðlaun VISA. Efnisskrá Trio Nordica spannar vítt svið. Auk þess að leika helstu verk fyrir píanótríó, leggja þær áherslu á fluting tónverka sem samin eru af konum, norræn verk og nútímaverk, sem sum hver hafa verið samin sérstaklega fyrir tríóið.
Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, er fædd á Íslandi. Hún stundaði nám við New England Conservatory í Boston hjá Dorothy Delay. Síðar hlaut hún meistaragráðu undir handleiðslu Almitu og Roland Vamos. Hún hefur margsinnis komið fram sem einleikari og þátttakandi á kammertónleikum í Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og Kína. Auður hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir leik sinn í kammertónlist og sem einleikari. Auður hefur oft leikið inn á geisladiska en auk þess kemur hún reglulega fram í útvarpi og sjónvarpi.
Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari, er fædd á Íslandi. Hún stundaði nám við New England Conservatory í Boston og hlaut meistaragráðu sína þar. Hún hefur oft komið fram sem einleikari og þátttakandi á kammertónleikum í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Japan. Bryndís hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir leik sinn, bæði sem einleikari og kammerspilari. Hún hefur leikið inn á fjölda geisladiska auk þess hefur hún tekið upp fyrir sjónvarp og útvarp.
Mona Kontra, píanóleikari, er fædd í Svíþjóð. Hún kom fyrst fram sem einleikari á tónleikum með Sinfóníuhljómsveitinni í Norrköping, þegar hún var tólf ára gömul. Síðan þá hefur hún reglulega komið fram á tónleikum sem einleikari og kammerspilari víðs vegar í Evrópu. Árið 1987 brautskráðist hún frá Sibeliusarakademiunni í Helsinki, með hæstu einkunn. Mona er sem stendur meðlimur í Nordic Chamber Ensemble. Hún hefur komið fram á ýmsum geisladiskum en auk þess verið einleikari með mörgum helstu hljómsveitum Svíþjóðar.
Hálfvitatúrinn hefst í Iðnó
Gleðisveitin fjölmenna Ljótu Hálfvitarnir hefur haft nokkuð hægt um sig í sumar, en ætlar nú að dusta rykið af ístrum, básúnum og fagottum og halda nokkra tónleika, sem þeir af sérþingeyskri hógværð kalla “hálfvitatúrinn 2008″.
Miðvikudaginn 16. júlí kl. 21 hyggjast þeir spila í Iðnó við anda- og mávapollinn í miðborg Reykjavíkur, ásamt hinni skarpgreindu hljómsveit South River Band. Þrátt fyrir greindarmuninn þá hafa þessar hljómsveitir um hríð haft áhuga á að rugla reitum, enda báðar hressar, þjóðlagaskotnar og einbeittar við það verkefni að láta áhorfendum aldrei leiðast. Miðasala verður við innganginn og verðið hóflegur 1.500 kall.
Ljótu hálfvitarnir halda síðan einir síns liðs út á land og spila fimmtudaginn 17. júlí í einksamkvæmi á Litla hrauni og þá um kvöldið í Frumleikhúsinu í Keflavík, nánar tiltekið kl 21. Rökrétt framhald af því eru síðan tónleikar á Fjölskyldu- og skeljahátíðinni í Hrísey þann 18. júlí, einnig klukkan 21, og fara þeir fram í Sæborg. Endapunkturinn er svo löngu fyrirséðir tónleikar í Skúlagarði í Kelduhverfi, kl. 22 þann 19. júlí en til gamans má geta þess að einn hálfvitanna segist vera ættaður frá þessum slóðum og er búinn að væla lengi um að fá að spila „heima í sveitinni”.
Um frekari spilamennsku hálfvitanna verður ekki að ræða fyrr en með haustinu að loknum hálfvitaréttum.
Nýtt lag
Eftir velgengni frumburðarins hafa Hálfvitarnir hafið upptökur á næstu plötu. Fyrsta lagið af henni hefur verið sent útvarpsstöðvunum. Það heitir því alþýðlega nafni „Stjáni” sem eins og margir vita er gælunafn margra sem heita Kristján. Þetta er lag af gerð sumarsmella, ekki ósvipað og Sunshine reagge og Life is life, nema bara skemmtilegt og með boðskap. Höfundur lags og texta er Eggert Hilmarsson en hann var í nýlegri kosningu innan hljómsveitarinnar valinn vinsælasti hálfvitinn og Oroblu-hálfvitinn 2008.
LJÓÐASTUND Í TALI OG TÓNUM
![]() |
Jóhann Hjálmarsson, Christopher Burawa og Tríó Carls Möller
LJÓÐASTUND í tali og tónum verður í Listasal Mosfellsbæjar miðvikudaginn 16. júlí kl 20. Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa lesa úr ljóðum sínum og þýðingum og Tríó Carls Möller fléttar inn djasstónum. Tríóið skipa þeir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Bjarni Sveinbjörnsson. Tónlistin er eftir Carl Möller og fleiri.
Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér sautján ljóðabækur, hina fyrstu 1956. Hann var Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2006.
Ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á um 30 tungumál og hafa komið víða í tímaritum og safnritum og að auki í sérstökum bókum í Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum, á Spáni og í Noregi.
Bandaríska skáldið og þýðandinn Christopher Burawa er fæddur á Íslandi og á íslenska móður. Hann kennir enskar bókmenntir og skapandi skrif við háskólann í Arizona og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir bækur sínar og þýðingar. Hann hefur þýtt margar bækur eftir Jóhann Hjálmarsson og fyrir eina þeirra, Of the Same Mind, hlaut hann Toad Press International Chapbook Competition verðlaunin í samkeppni 2005.
Væntanlegt er safn eftir Christopher með ljóðum Jóhanns en í því verða í heild bækurnar Malbikuð hjörtu (1961), Fljúgandi næturlest (1961) og Mig hefur dreymt þetta áður (1965).
Aðgangur er ókeypis.
Fjórhent á píanó í stofu skáldsins
![]() |
Sunnudaginn 13. júlí kl. 16:00 munu píanóleikaranir Arnhildur Valgarðsdóttir og Ástríður Haraldsdóttir leika fjórhent á píanó á Gljúfrasteini. Á efnisskránni eru verk eftir Grieg, Brahms, Rubinstein og íslenska tónskáldið Hildigunni Rúnarsdóttur, en hún samdi verk sitt, Sjóræningjapolka, sérstaklega fyrir þær. Taka skal fram að á sunnudaginn er hinn íslenski safnadagur og því ókeypis á tónleikanna og á safnið allan daginn.
Arnhildur og Ástríður hófu að leika saman er þær spiluðu fjórhentan píanómeðleik með kvennakórnum Vox feminae þegar kórinn flutti Liebesliederwalzer árið 2002. Síðan hafa þær leikið saman fjórhent við ýmis tækifæri; tvisvar komið fram á kennaratónleikum Suzukitónlistarskólans í Reykjavík, haldið tónleika fyrir nemendur í Norræna húsinu og margt fleira.
Arnhildur Valgarðsdóttir stundaði píanónám við Tónlistarskólann á Akureyri. Þaðan lauk hún 8. stigi og starfaði um skeið við píanóleik, m.a. hjá Leikfélagi Akureyrar. Þá lá leiðin til Royal Scottish Academy of Music and Drama en þaðan útskrifaðist hún með BA-gráðu og CPGS-diplómu í píanóleik með söng sem aukagrein árið 1995. Arnhildur hefur starfað bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra tónlistarmenn auk þess að hafa unnið mikið sem meðleikari með kórum og hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum. Hún starfar einnig sem píanókennari og kórstjóri.
Ástríður Haraldsdóttir lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík auk tveggja ára framhaldsnámi í píanóleik frá sama skóla. Hún hefur sótt masterklassa í Tékklandi og einnig verið í tímum hjá Lili Raeburn sem kennir í London. Ástríður hefur starfað við píanóleik í mörg ár bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra tónlistarmenn. Hún hefur unnið mikið sem meðleikari með kórum og komið fram á fjölda tónleika, hér heima og erlendis. Hún starfar einnig sem píanókennari og er meðleikari við Suzukitónlistarskólann í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Dóra Gestsdóttir í síma: 863 0685 og Arnhildur Valgarðsdóttir í síma: 698 7154.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér. Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.
Íslenski safnadagurinn
![]() |
fyrir fjölskylduna sunnudaginn 13. júlí
Listasafn Íslands Leiðsögn fyrir alla fjölskylduna kl. 14 í fylgd Rakelar Pétursdóttur
Á árlegri sumarsýningu Listasafns Íslands er lögð áhersla á ólík tímabil í íslenskri nútíma- og samtímalist. Um er að ræða breitt úrval úr safneign með á fimmta tug listamanna, flestra íslenskra, auk Picassos, en brjóstmynd hans af Jacqueline, eiginkonu listamannsins verður þungamiðja sýningarinnar. Hin klassísku gildi eru í fyrirrúmi, bæði í málaralist og höggmyndum, en slík gildi, mótuð á tímum fornmenningar Miðjarðarhafslandanna voru hinum spænska meistara alla tíð óþrjótandi uppspretta. Á sýningunni eru málverk, teikningar og höggmyndir, vísa til þessa ævaforna uppruna eða byggja á þeim gildum, sem sprottin eru af klassískum meiði.
Salir 1 og 2: Hin klassísku gildi.
Salur 3: Of the North frá 2001 eftir Steinu.
Salur 4: PATH frá 2008 eftir Elínu Hansdóttur.
Sýningarstjóri er Halldór Björn Runólfsson
Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í Íslenska safnadeginum næstkomandi sunnudag en dagurinn er helgaður fjölskyldunni.
Á Kjarvalsstöðum er fjölskylduleiðsögn kl. 15:00 og einnig eru þar í boði sýningar, leikir og þrautir sem ætluð eru börnum á öllum aldri.
Í norðursal Kjarvalsstaða má iðulega finna sýningar sem hafa sérstök fræðslumarkmið að leiðarljósi og virka vel sem lykill að öðrum sýningum í safninu. Nú stendur yfir sýningin Hvar er ég? sem fjallar um þau tæki og tól sem við notum til að staðsetja okkur í tilverunni. Þar má finna risastóra krítartöflu í laginu eins og Ísland og kort af Íslandi frá 17. öld sem gefur okkur til kynna hvernig hugmyndi r um Ísland og norðrið hafa breyst í gegnum tíðina. Þá er áttaviti í gólfi og hnattlíkan til staðar ásamt tölvu með vinsæla staðsetningarforritinu Google Earth sem gerir manni kleift að skoða hina ýmsu staði nær og fjær. Landakortabækur, sögur af fjarlægum stöðum og ævintýri eru í salnum og upplagt að hefja safnaleiðangur um Kjarvalsstaði á þessum stað.
Listasafn Reykjavíkur kom nýlega með fram á sjónarsviðið verkefni sem fjölskyldufólki er boðið upp á og gerir þeim kleift að fara um hvaða sýningu sem er í boði og gera úr því leiðangur sem er í senn skemmtilegur og fræðandi. Verkefnið nefnist Hvað er svona skemmtilegt við safn? og er ætlað ungum ofurgestum. Gestir fá í hendur bækling með skemmtilegum hugleiðingum um safnið, verkin og hvað
það getur verið gaman að spá og spekúlera. Hægt er að teikna mynd af verkum eða öðru sem kemur upp í hugann og síðan fylgir ofurgestsgríma sem hægt er að setja upp til að átta sig betur á verkunum sem fyrir augu ber.
Íslensku safnaverðlaunin verða afhent á Bessastöðum í tilefni dagsins en þess má geta að árið 2001 féllu þau í skaut Listasafni Reykjavíkur fyrir framúrskarandi fræðslu- og fjölskyldustarf.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10 – 17, Hafnarhús daglega frá kl. 10 – 17 og fimmtudaga 10 – 22. Ásmundarsafn er opið daglega kl. 10 – 16.
Listasafn Árensinga Hveragerði Ratleikur fyrir fjölskylduna á sýningunni
Listamaðurinn í verkinu: Magnús Kjartansson
Til þess að vekja athygli á fjölbreyttri starfsemi safnanna í landinu og þeirri faglegu vinnu sem þar fer fram, hefur annar sunnudagur í júlí verið tilnefndur íslenski safnadagurinn og bjóða þá mörg söfnin upp á dagskrá í tilefni dagsins. Í Listasafni Árnesinga verður hægt að fara í ratleik um sýninguna Listamaðurinn í verkinu – Magnús Kjartansson og er fjölskyldan hvött til að njóta samverunnar og gera sér glaðan dag í safninu.
Senn líður að lokum þessarar sýningar á verkum Magnúsar en hún hefur verið mjög vel sótt og var á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á sýningunni eru 43 verk sem Magnús vann á pappír milli 1982 og 1988 og hafa aðeins fáein af þessum verkum áður verið sýnd. Í þeim má rekja tilraunir Magnúsar með ýmsar ljósprentsaðferðir sem gerðu honum kleift að þrykkja hluti, myndir og jafnvel eigin líkama beint á pappírinn. Verkin marka mikið umbrotatímabil í list Magnúsar þar sem hann reiddi sig minna á fágun og formtækni en áður og gekk nær sjálfum sér, bæði í myndefninu og aðferðunum við gerð myndanna. Líkamleg tjáning í þessum verkum er sterk og þar birtast handa og jafnvel fótaför innan um ágengar táknmyndir svo tjáning þeirra er einna líkust dansi og sterkir litir og kröftug teikning draga áhorfandann nær.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12 – 18. Hægt er að kaupa m.a. kaffi og vöfflur í kaffistofu safnsins. Núverandi sýning stendur til 20. júlí og er aðgangur ókeypis.
Ungverskir dansar og rómantík
![]() |
í Listasafni Sigurjóns annað kvöld
Myndlistin um helgina
![]() |
Í dag kl. 15 verður opnuð yfirlitsssýning í Listasafninu á Akureyri á verkum Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar undir yfirskriftinni Gárur. Sýningin stendur til 24. ágúst. Á sama tíma opna fjórir listamenn vinnustofur sínar að Mýrargötu 28 og standa fyrir sýningunni Aliance í Gallerí Éli til 31. júlí. Listahátíðarsýningarnar standa enn í Hafnarhúsinu og á Kjarvalsstöðum. Við minnum líka á sýningu á verkum magnúsar Kjartanssonar í Listasafni Árnesinga, Hveragerði.
Listasafnið á Akureyri Sumarsýningin er helguð yfirliti á verkum Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar. Guðmundur hefur starfað við myndlist og kennslu síðastliðna fjóra áratugi og verið mikilvirkur í félags- og baráttumálum myndlistarmanna. Eftir nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1967 og Valand-listaháskólann í Gautaborg með MA-gráðu frá grafíkdeild árið 1972, flutti Guðmundur norður um haustið fyrir áeggjan Harðar Ágústssonar sem vildi að hann tæki að sér að leiða hið nýstofnaða Myndlistarfélag Akureyrar til vegs og virðingar, en þá um mundir skorti sárlega kennara. Guðmundur lét strax að sér kveða sem einn fyrsti gagnmenntaði myndlistarmaður norðurlands. Jónas Jakobsson og Haukur Stefánsson höfðu rutt veginn ásamt Kristni G. Jóhannssyni.
Él Listamennirnir fjórir sem standa að Aliance eru Friðrik Örn Hjaltested, Viðar Þór Guðmundsson, Þóranna Dögg Björnsdóttir og Þórunn Björnsdóttir. Aliance fiskgleymsluhúsið var byggt árið 1925 en undanfarin ár hefur verið ýmis starfsemi þar, trésmíðaverkstæði, geymslur og fleira. Nú hýsir það Saltfélagið á neðri hæð en efri hæðirnar hafa listamennirnir lagfært og bjóða okkur nú að koma og skoða.
Djassstemning á Gljúfrasteini
![]() |
Kristjana syngur á sunnudaginn
Sunnudaginn 6. júlí kl. 16 halda Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona, Agnar Már Magnússon píanóleikari og Helga Björg Ágústsdóttir sellóleikari tónleika í stofunni á Gljúfrasteini. Á efnisskrá eru lög eftir tónskáldin Sunnu Gunnlaugsdóttur, Tómas R. Einarsson og Sigurð Flosason við ljóð þekktra íslenskra skálda, þar á meðal Tómas Guðmundsson og Halldór Laxness.
Kristjana Stefánsdóttir lauk með láði námi í djasssöng frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi vorið 2000 undir handleiðslu Rachel Gold, en áður hafði hún lokið söngnámi við Söngskólann í Reykjavík og sótt einkatíma hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Kristjana hefur einnig lokið á námi í söngtækni hjá Cathrine Sadolin í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn 2005. Kristjana hefur haldið tónleika víða, m.a. í Hollandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Englandi, Finnlandi, Danmörku og Japan.
Agnar Már hóf tónlistarnám sitt sex ára gamall við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem hann lagði fyrst stund á orgelleik en síðar píanó. Þá lá leið hans í Tónlistarskóla FÍH þar sem hann lauk prófi í djasspíanóleik með ágætiseinkunn. Í beinu framhaldi fluttist Agnar til Hollands, þar sem hann lauk háskólaprófi í djasspíanóleik og kennslu. Agnar starfar nú sem djasspíanisti, en kennir jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla FÍH.
Helga Björg Ágústsdóttir sellóleikari lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1992 undir handleiðslu Bryndísar Höllu Gylfadóttur. Þaðan lá leiðin til Hollands þar sem hún stundaði framhaldsnám við Sweelinck Conservatorium í Amsterdam hjá Dmitri Ferschtman. Frá árinu 2000 hefur hún starfað sem kennari og hljóðfæraleikari á Íslandi. Hún kennir nú við Tónlistarskóla Garðabæjar, Nýja Tónlistarskólann og Tónskólann Doremi. Þá leikur hún reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Unnendur djass og góðrar tónlistar ættu því ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara. Sem fyrr er aðgangseyrir aðeins 500 kr. og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.









