SVEINBJÖRN BEINTEINSSON ALLSHERJARGOÐI

30. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

NÝ HEIMILDARMYND á fimmtudaginn kl. 20

Fimmtudagskvöldið 3. júlí klukkan 20:00 verður sýnd í Hafnarhúsinu heimildarmynd um Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoða.

Sveinbjörn Beinteinsson bjó lengst af á Draghálsi í Svínadal. Hann var skáld gott, kvæða-og fræðimaður, og eftir hann liggja nokkrar ljóðabækur og kver, auk bókarinnar Bragfræði og háttatal, sem er undirstöðurit kvæðamanna. Sveinbjörn leit á náttúruna sem lifandi veru og vildi að menn lifðu í jafnvægi við nátturuöflin. Hann vildi virkja íslenska þjóðmenningu og þá fornu siði og þann arð sem okkur var gefin af gengnum kynslóðum. Sveinbjörn var einn af stofnfélögum Ásatrúarfélagsins og allsherjargoði félagsins frá upphafi til dánardags 1993.

Nánari upplýsingar veitir kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Örn Egilsson í síma 698-8471.

AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT

 

Reykvíska eldhúsið

27. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

Matur og mannlíf í hundrað ár

Á haustdögum mun félagið Matur-saga-menning efna til sýningar um mat og mataræði Reykvíkinga á 20. öld. Sýningin verður til húsa í hjarta miðbæjarins, Aðalstræti 10, elsta húsi Reykjavíkur og er markmiðið með henni að bjóða Reykvíkingum og öðrum gestum að fræðast, njóta og bragða á lítt þekktri matarsögu höfuðborgarinnar.

 

Vegna undirbúnings sýningarinnar leitum við eftir upplýsingum hjá  fólki sem á í fórum sínum gögn um mataræði Reykvíkinga fyrrum, einkum persónulegum heimildum, myndum og mataruppskriftum frá Reykvíkingum. Það væri sérstaklega gaman að fá afnot af myndum úr fjölskylduveislum, skírnarveislum, fermingarveislum og brúðkaupsveislum í heimahúsum þar sem maturinn er í forgrunni, búreikningum, matseðlum frá veitingahúsum og síðast en ekki síst handskrifuðum uppskriftarbókum allra myndarlegu húsmæðranna í Reykjavík. Einnig væri áhugavert að fá upplýsingar um merka frumkvöðla í matargerð og þá einstaklinga, sem sett hafa á eftirminnilegan hátt, mark sitt á matarsögu Reykjavíkur.

Upplýsingar um sýninguna er að finna á heimasíðu hennar: www.matarsetur.is

 

Á mamma þín station bíl?

26. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

Slegið á létta strengi á Gljúfrasteini

Sunnudaginn 29. júní kl. 16 munu Dean Ferrell og Sigurður Halldórsson syngja og leika á ýmsa strengi í húsi skáldsins á Gljúfrasteini. Á efnisskránni eru ýmis verk fyrir violone sem er forfaðir kontrabassans, en Dean hefur lengi kynnt sér fjölskyldu bassans. Hann stundaði kontrabassanám við The Juilliard School of Music, hefur verið meðlimur í Hong Kong Philharmonic, San Diego Symphony, San Jose Symphony, Pacific Symphony, Den Norske Opera, Íslensku óperunni og Sinfóníuhljómsveit Íslands árin 1990-93 og frá 1998. Dean tekur reglulega þátt í flutningi barokktónlistar hérlendis sem erlendis.

Sjálfur segir Dean þetta þegar hann er spurður úti í áhugann á bassanum:

 

“Staðráðinn í að spila á flautu kom ég á hljómsveitaræfingu í grunnskóla þegar ég var ellefu ára. – Það getum við rætt inni á skrifstofunni minni, sagði stjórnandinn og hélt áfram:  -hmm… getur þú komið með þennan bassa þarna fyrir mig? Svo spilaði hann nokkrar nótur á píanóið og bað mig um að finna þær á bassanum. Síðan spurði hann: – Á mamma þín station bíl?”

 

Sigurður Halldórssson sellóleikari hefur starfað sem einleikari og kammertónlistarmaður á Íslandi í um tvo áratugi. Hann hefur tekist á við fjölbreytilega tónlistarstíla, allt frá gregorsöng miðalda til nýjustu tónverkanna, og er m.a. meðlimur og einn stofnandi Caput hópsins. Auk þess starfar hann með Voces Thules, Camerarctica, Skálholtskvartettinum og Bachsveitinni í Skálholti. Hann hefur komið fram á ótal alþjóðlegum listahátíðum og hljóðritað fjölda hljómdiska. Í yfir tvo áratugi hefur hann starfað með Daníel Þorsteinssyni píanóleikara og hafa þeir flutt stóran hluta tónbókmenntanna fyrir selló og píanó vítt og breitt um Ísland og austan hafs og vestan. Sigurður hefur leikið allar einleikssvítur Bachs á Sumartónleikum í Skálholtskirkju og hljóðritað sellókonserta eftir Vivaldi með Bachsveitinni í Skálholti og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur gegnt starfi listræns stjórnanda Sumartónleika í Skálholtskirkju síðan í desember 2004.

 

Það má því búast við skemmtilegum söng og hressilegu spili á framandi hljóðfæri í stofunni á Gljúfrasteini sunnudaginn 29. júní. Sem fyrr er aðgangseyrir aðeins 500 kr. og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 

List mót byggingarlist

25. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  
Steina sýnir myndbönd á hringmynduðum skjám þar sem allt fossar og snýst og töfrar áhorfandann gersamlega.

Síðasta sýningarhelgi

Á sunnudag lýkur sýningunni List mót byggingarlist í Listasafni Íslands og er ástæða til að hvetja alla sem ekki hafa séð hana til að drífa sig. Þetta er einstaklega áhrifamikil sýning, ekki síst makalaus myndbandsverk Steinu í öðrum efri salnum, myrkragöng Elínar Hansdóttur í hinum og undurfallegt ljósverk Finnboga Péturssonar á móttökuhæðinni.

Á sunnudag mun Halldór Björn Runólfsson safnstjóri vera með leiðsögn um sýninguna.

Aðsókn að sýningunni hefur verið mjög góð og sýningin fengið góða umfjöllun. En um helgina eru sem sagt síðustu forvöð að sjá hana!

Sýningin er framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar í Reykjavík 2008. Þar eru verk eftir íslenska og erlenda listamenn í fremstu röð, þau Monicu Bonvicini, Elínu Hansdóttir, Finnboga Pétursson, Steinu og Franz West. Þessum verkum er teflt fram mót umgjörð Listasafns Íslands og draga með því fram aldagamla togstreitu milli húsagerðar-listar og myndlistar en hvor listgreinin fyrir sig á bágt með að láta í minni pokann fyrir hinni. Leitast er við að velta upp sem flestum hliðum þessara merkilegu átaka, í raun og í riti, og fylgja eftir þeim frjóa og skapandi ágreiningi sem af þeim hefur hlotist.

Síðasta sýningin

25. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

í Möguleikhúsinu við Hlemm

Frá árinu 1995 hefur Möguleikhúsið staðið fyrir leikhúsnámskeiðunum “Leikhús möguleikanna” fyrir börn á sumrin sem haldin hafa verið í húsnæði Möguleikhússins við Hlemm. Um er að ræða þriggja vikna námskeið þar sem unnið er með börnunum fimm tíma á dag fimm daga vikunnar og fengist við flest þau atriði sem tengjast leikshúsuppsetningu. Allir þessir þættir eru síðan nýttir til að vinna leiksýningu frá grunni, sem sýnd er í Möguleikhúsinu í lok námskeiðsins. Skapast hefur sú hefð að sýningin sé sýnd a.m.k. tvisvar, annars vegar fyrir börn á nokkrum leikjanámskeiðum og hins vegar fyrir aðstandendur barnanna.

 

Nú í sumar hófst námskeiðið 9. júní og lýkur með sýningu næstkomandi föstudag, 27. júní. Sýningin ber heitið “Hentu í mig hamrinum” og byggir á sögum úr norrænni goðafræði, nánar tiltekið frásögninni af því er Þrymur stelur hamri Þórs. Þátttakendur eru 12 börn á aldrinum 9 til 12 ára en leiðbeinendur á námskeiðinu eru Pétur Eggerz og Margrét Pétursdóttir.

 

Sýningin á föstudag verður jafnframt síðasta leiksýningin í Möguleikhúsinu  við Hlemm, en vegna minnkandi stuðnings frá menntamálaráðuneytinu er ekki lengur grundvöllur fyrir rekstri húsnæðisins. Í júlíbyrjun mun starfsemi leikhússins flytja úr húsnæðinu sem kemur til með að verða geymsluhúsnæði fyrir Félagsbústaði Reykjavíkurborgar.

Möguleikhúsið mun þó ekki hætta starfsemi heldur starfa áfram sem ferðaleikhús án eigin húsnæðis.

Möguleikhúsið opnaði leikhúsið við Hlemm í júní 1994 og hefur því haft þar aðsetur í 14 ár. Leikhúsið hefur frá upphafi verið helgað sýningum fyrir börn og unglinga og er fyrsta leiksviðið hér á landi sem eingöngu er ætlað í þeim tilgangi. Það hlýtur því að teljast til nokkurra tíðinda að nú sé að því komið að loka þurfi Möguleikhúsinu við Hlemm, en vonandi kemur sá tími síðar að stuðningur finnist til að tryggja rekstur sérstaks leikhúss fyrir yngstu kynslóðina á Íslandi.

 

Möguleikhúsið býður fjölmiðlafólki að koma í heimsókn og kynna sér það sem fram fer á námskeiðinu fimmtudaginn 26. eða föstudaginn 27. júni. Nánari upplýsingar veitir Pétur Eggerz í s. 8971813.

 

 

 

Maxímús músíkús ferðamús

25. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

Maxímús músíkús hefur notið mikilla vinsælda síðan hann steig fram í sviðsljósið í lok mars. Uppselt var á tvenna tónleika hans í Háskólabíói og bókin um hann, Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina eftir þau Hallfríði Ólafsdóttur og Þórarin Má Baldursson, hefur setið í efstu sætum metsölulistans allt frá útkomu, enda rann fyrsta upplagið út eins og heitar lummur og nýtt upplag er á leið í búðir.

Færeyskir útgefendur voru skjótir til að sýna þessari snilldarmús áhuga. Tvö forlög vildu gefa bókina út, bæði Bókadeild Føroya Lærarafelagsins og Føroya Skúlabókagrunnur, og allt stefndi í uppboð á útgáfuréttinum. Hefði það verið í fyrsta sinn í sögu Réttindastofu Forlagsins að slíkt uppboð færi fram í Færeyjum og ekki laust við að viss spenna gripi um sig meðal starfsmanna. Sem betur fer leystist málið í miklu bróðerni og varð niðurstaðan sú að báðir aðilar ákváðu að kaupa útgáfuréttinn og skipta honum með sér.

Í bókinni Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina segir frá ævintýrum Maxa þegar hann rambar inn í tónlistarhús þar sem sinfóníuhljómsveit er að æfa sig fyrir tónleika. Hann þekkir tónlist mannfólksins úr frægðarsögum langafa síns en fær nú loksins að kynnast henni af eigin raun. Í sögunni er lesandinn leiddur inn í töfraheima tónlistarinnar í orði og tónum. Hljóðfærin eru kynnt eitt af öðru eftir því sem ævintýrum Maxa vindur fram og lesendur læra að þekkja hljóðin sem þau gefa frá sér.

 

GAMLA REYKJAVÍK – MERKILEGRI EN VIÐ HÖLDUM

24. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

Kvöldganga úr Kvosinni á fimmtudagskvöldið

Á fimmtudagskvöldið kl. 20 hefst Kvöldganga úr Kvosinni á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur undir stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar skipulagshagfræðings.

 

Að undanförnu hefur mikil umræða farið fram um ástand miðbæjarins í Reykjavík. Þegar gengið er um miðbæinn nú er erfitt að gera sér í hugarlund hversu mikill metnaður var lagður í uppbyggingu bæjarins í upphafi tuttugustu aldar. Á tímabili þegar Ísland var talið fátækasta land Evrópu var mikið kapp lagt á byggingu fallegs bæjar sem sóma mundi sér vel sem höfuðstaður sjálfstæðs ríkis. Með blöndu af þjóðlegri og erlendri byggingarlist var mótaður íslenskur stíll og úr honum skapaður einstakur bær. Nú eru mörg þeirra húsa og gatna sem þá risu ýmist horfin eða nánast óþekkjanleg og erfitt að ímynda hversu fallegur miðbær Reykjavíkur hefði getað orðið og getur jafnvel orðið enn.
 
Með hjálp mynda úr Ljósmyndasafni Reykjavík mun Sigmundur Davíð færa rök fyrir því að mannlíf í Reykjavík á fyrstu áratugum tuttugustu aldar hafi verið miklu þróaðra og bærinn mun merkilegri en við gerum okkur grein fyrir í upphafi þeirrar tuttugustu og fyrstu.
 
Staður: Grófin milli Tryggvagötu 15 og 17.

Stund:  20:00 – 21:00

ALLIR VELKOMNIR – ÞÁTTTAKA ÓKEYPIS

Eins og undanfarin sumur bjóða Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur og Viðey, uppá miðbæjargöngur á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt er á stað úr Grófinni, milli Grófarhúss og Hafnarhúss.
Göngurnar taka rúmlega klukkutíma, þátttaka er ókeypis en greiddur er ferjutollur út í Viðey.

Tónleikar í Þjóðmenningarhúsinu

23. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

Fjörug dagskrá í júlí

Tríóið Glingur heldur hádegistónleikaröð í júlí;

1., 8. og 15. júlí kl. 12:15

 

Tríóið Glingur, skipað þeim Sólborgu Valdimarsdóttur á píanó, Karli Jóhanni Bjarnasyni á selló og Maríu Konráðsdóttur sem syngur og spilar á klarínettu, heldur þrenna tónleika í bókasal hússins í júlí. Þau eru nemendur við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík og stofnuðu tríóið með það fyrir augum að kynna sígilda tónlist fyrir almenningi. Sumarið 2008 hlýtur tríóið styrk frá Hinu húsinu til þessa verkefnis og eru tónleikarnir í Þjóðmenningarhúsinu liður í því. Þeir eru haldnir þriðjudagana 1., 8. og 15. júlí kl. 12:15. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Beethoven, Hartmann og Glinka ásamt verkum eftir kunn íslensk tónskáld.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

 

Einleikstónleikar á flautu

3. júlí kl. 15:00

 

Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari vinnur nú annað sumarið í röð að tónlistarflutningi í Reykjavíkurborg á vegum Hins hússins. Í þetta skiptið er hún ein á ferð með fjölbreytta efnisskrá einleiksverka fyrir flautuna. Fimmtudaginn 3. júlí kl. 15:00 heldur hún kaffitónleika í bókasal Þjóðmenningarhússins. Á efnisskránni eru verk eftir Telemann, Tomasi, Takemitsu og Piazzolla.

 

Aðgangur er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.

Hafdís útskrifaðist með BMus gráðu frá Listaháskóla Íslands vorið 2005 og hélt þá til framhaldsnáms í flautuleik í París hjá Philippe Pierlot.

 

 

BLÁA BÍLVÉLIN HÍFÐ UPP

23. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

í Hafnarhúsi á fimmtudagskvöldið

Fresta varð lokahluta gjörningsins á verki Roger Hiorns sem fram átti að fara þann 22. júní til fimmtudagsins 26. júní kl. 20.
Mikil óvissa hefur verið með hve langan tíma taki fyrir koparsúlfat upplausnina að ná stofuhita í einangraða plastkarinu í A-sal í Hafnarhúsi. Á sunnudaginn var hitastigið mælt og kom í ljós að það var enn of hátt. Ákveðið var því að fresta gjörningnum.
Tæknimenn safnsins munu koma með tæki sín og tól inn í A-sal rétt fyrir klukkan 20 og hífa vélina upp. Það verður spennandi að sjá hvort bílvélin muni koma jafn glæsilega út eftir meðferðina og blái segulkubburinn í Serpentine Gallery á sínum tíma.

 

Af jarðarinnar hálfu

21. júní 2008 · Fært í Fréttir ·  

bók um verk og höfundarferil Péturs Gunnarssonar

Eftir nokkrar vikur kemur út ritið Af jarðarinnar hálfu… en það hefur að geyma ritgerðir um verk og höfundarferil Péturs Gunnarssonar rithöfundar auk þess sem þar er fjallað um stöðu hans í íslenskum samtímabókmenntum.

Höfundar efnis í ritinu eru bæði skáld og fræðimenn, þau Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, Guðrún Lára Pétursdóttir, Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Halldór Guðmundsson, Hjalti Hugason, Jón Karl Helgason, Kristján Kristjánsson, Sigurður Pálsson, Soffía Auður Birgisdóttir og Torfi Tulinius. Lokaorð bókarinnar á Pétur sjálfur.

Við bjóðum þér að gerast áskrifandi að riti þessu og fá nafn þitt skráð á Tabula gratulatoria sem prentuð verður fremst. Enn fremur færðu bókina senda heim þegar hún kemur út í lok sumars. Bókin kostar 3000 krónur. Vinsamlegast skráið ykkur hjá Margréti Guðmundsdóttur, verkefnisstjóra hjá Hugvísindastofnun (mgu@hi.is) fyrir 1. júlí nk.

Í tölvupóstinum skal að tilgreina nafn/nöfn sem birta á í bókinni og nafn, kennitölu og heimilisfang viðtakanda reikningsins.

Torfi H. Tulinius og Jón Karl Helgason (ritstjórar)

Næsta síða »