Útvarpsleikhúsið í allt sumar

31. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Engin sumarlokun þar

Fjölskylduleikritið Hræðilega fjölskyldan verður leikið á rás 1 á sunnudagsmorgnum í júní kl. 10.15. Það er eftir  Gunnillu Boethius en íslenska þýðingu gerði Þórarinn Eldjárn.

 

Í þorpinu Kirsuberjalundi hefur lífið verið með kyrrum kjörum um langa hríð. En dag nokkurn flytur undarleg fjölskylda öllum að óvörum inn í stóra auða húsið í þorpinu. Fara þá ýmsir skrýtnir hlutir að gerast.

 

Leikendur: Ragnheiður Tryggvadóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Helga Þ. Stephensen, Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður Skúlason, Þóra Friðriksdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Valdimar Örn Flygenring.

Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir

 

Hádegisleikritið Smá sögur  eftir Kristínu Ómarsdóttur

verður flutt virka daga kl. 13 frá 30. júní – 11. júlí.

Óvænt og skemmtileg sjónarhorn á líf okkar í dag frá skáldkonunni sem kann að afhjúpa ólíkindin í hversdeginum. Smá sögur eru tilnefndar til Grímunnar í ár sem Útvarpsverk ársins.

Smá sögur eru 10 sögur, ein á dag – og engar smá sögur!

Leikendur: Sóley Elíasdóttir, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann og Sveinn Þórir Geirsson; ;Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson; ;Þorsteinn Gunnarsson og Erling Jóhannesson; ;Herdís Þorvaldsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir; ;Soffía Jakobsdóttir og Margrét Pétursdóttir; ;Pálmi Gestsson og Íris Gunnarsdóttir; ;Harpa Arnardóttir, Jörundur Ragnarsson og Víðir Guðmundsson; ;Arndís Hrönn Egilsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Bjartmar Þórðarson og Jóhann G Jóhannsson; ; Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Lárus Jón Björnsson; ; Elva Ósk Ólafsdóttir, Arnmundur Ernst Bachmann, Theodór Júlísson og Sigrún Sól Ólafsdóttir.
Hljóðvinnsla: Hjörtur Svavarsson
Leikstjóri: Guðmundur Ingi Þorvaldsson

 

VASALEIKHÚSIÐ heimsækir Útvarpsleikhúsið virka daga kl. 13 frá 14. júlí  – 1. ágúst.

Höfundur er Þorvaldur Þorsteinsson.

Óvenjulegt leikhús spratt upp einn kaldan vetrardag 1991 á útvarpsöldunum og vissu menn ekki hvaðan á þá stóð veðrið í fyrstu. En leikhúsið sló í gegn svo um munaði – þetta var Vasaleikhúsið.
Nú er kominn tími til að endurnýja kynnin. Stóri bróðir,  Útvarpsleikhúsið, heimsækir litlu systur sína Vasaleikhúsið og rifjar upp bestu verk leikhússins og bregður sér einnig á bak við tjöldin.

Vasaleikhúsið: Þorvaldur Þorsteinsson

Útvarpsleikhúsið: Viðar Eggertsson

 

 

Hádegisleikritið Dauði trúðsins eftir Árna Þórarinsson og leikgerð Hjálmars Hjálmarssonar verður flutt virka daga kl. 13 frá 5. ágúst – 29. ágúst.

Splunkunýtt sakamálaleikrit !

Ganga draugar ljósum logum á björtum sumarnóttum um gamalt, yfirgefið hús á Akureyri? Þar er eitthvað á seyði og í gúrkutíð er allt hey í harðindum fyrir Einar blaðamann á Síðdegisblaðinu. Sumarhátíðin “Allt í einni” er að hefjast um verslunarmannahelgina og þúsundir gesta streyma til höfuðstaðar Norðurlands til að skemmta sér. Um leið kvisast út að stjörnur frá Hollywood séu komnar í bæinn fyrir tökur á erótískri spennumynd. Þá er gúrkutíðin úti.

Áður en Einar blaðamaður og Ólafur Gísli Kristjánsson yfirlögregluþjónn vita af hrannast verkefnin upp.

- Hver er unga stúlkan sem finnst myrt í gamla húsinu?
- Hver er dularfulla konan í símanum sem kveðst vera skyggn?
- Hvað er veruleikinn og hvað er sjónarspil?

Með helstu hlutverk fara Hjálmar Hjálmarsson sem leikur Einar, Jóhann Sigurðarson er Ólafur Gísli, Sigurður Hrannar Hjaltason er Ágúst Örn afleysingaljósmyndari og Guðrún S. Gísladóttir er hin dularfulla Viktoría.

Auk þeirra koma yfir 30 leikarar við sögu í því mikla persónusafni sem Dauði trúðsins geymir.

Tónlistin er eftir Hall Ingólfsson og hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson.

Leikstjóri er Guðmundur Ingi Þorvaldsson

Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz

30. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Í sumar mun Leikhópurinn Lotta sýna undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Frumsýning verður sunnudaginn 1. júní klukkan 14:00 í Elliðaárdal og önnur sýning klukkan 17:00 sama dag. Þar verður verkið síðan sýnt nær alla miðvikudaga í sumar kl. 18.00.

Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.

Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir.

Með helstu hlutverk fara Rósa Björk Ásgeirsdóttir sem Dóróthea, Baldur Ragnarsson sem Fuglahræðan, Sigsteinn Sigurbergsson sem Pjáturkarlinn, Anna Bergljót Thorarensen sem Ljónið og hundurinn Bella sem Tótó.

Er nauðsynlegt að skjóta þá?

30. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Sjá Pistla.

Er nauðsynlegt að skjóta þá?

30. maí 2008 · Fært í Pistlar ·  
Þóra Einarsdóttir varð Anna Frank.

Alltaf verður maður jafnhissa við að vera minntur á að fyrir aðeins rúmum sex áratugum hafi venjulegt fólk í okkar heimshluta, sem ekkert hafði gert af sér, þurft að lifa í felum árum saman til að sleppa frá að vera flutt í fangabúðir, þrælað út eða drepið af hatursfullum yfirvöldum. Síðast vorum við minnt á þetta á Listahátíð þegar Þóra Einarsdóttir rifjaði upp söguna af Önnu litlu Frank í Íslensku óperunni.

 

Ást á lífi í skugga dauða

Þóra Einarsdóttir hefur verið meðal bestu sópransöngkvenna okkar síðan hún kom fyrst fram, enda eftirsótt í evrópskum óperuhúsum. Hún er líka prýðileg leikkona – er til dæmis minnisstæð í hlutverki Despínu í Cosi fan tutte Mozarts hjá Íslensku óperunni fyrir rúmum áratug. En það var sprellfjörugt gamanhlutverk í fjölmennri óperu, annað er að syngja ein í rúman klukkutíma og lifa sig inn í hlutverk stúlku á fermingaraldri sem lifir hvern dag í ótta um að komist upp um hana og ástvini hennar þar sem þau húka í felum í bakhúsi í Amsterdam.

          Tónlistin er eftir Rússann Grigori Frid en textinn er unninn beint upp úr dagbókinni sem fannst í felustaðnum eftir stríð. Sjálf dó Anna í útrýmingarbúðunum í Bergen-Belsen nokkrum mánuðum eftir að fjölskyldan var svikin í hendur nasista og fáeinum vikum fyrir stríðslok. Tónlistin er áhrifamikil en ekki auðveld, þótt ekki yrði áheyrandi var við það í flutningi Þóru. Í útliti og hreyfingum á sviðinu er hún eins og stelpukrakki, en röddin er þroskuð og máttug. Hún hefur líka skýran textaframburð sem er stór kostur í þessu verki sem á svo mikið undir því að orð Önnu komist til skila. Það eru einkum þau sem halda áheyranda í tilfinningafjötrum.

          Mig minnir að leikritið um Önnu Frank leggi aðaláhersluna á samband Önnu við Pétur sem er í felum með henni og sýni að jafnvel í ómanneskjulegum aðstæðum verði unglingar ástfangnir og gleymi öllu öðru. Verk Frids fer fljótt yfir þá sögu en dregur fram heimspekinginn Önnu og þá ótrúlegu bjartsýni sem hún sýnir í þrengingunum, ást hennar á öllu sem lifir þrátt fyrir innilokun og stöðugan ótta.

          Með Þóru á sviðinu voru píanósnillingurinn Alexander Scherer og dansarinn Valerie Robert sem túlkaði hugsanir og þrár Önnu í átakamiklum dansi. Saman voru þær óviðjafnanlegar þessar tvær ungu konur.

 

Kvalir hvalanna

Kannski verður einhvern tíma jafnóskiljanlegt að mennirnir skyldu drepa hvalina, spendýrin glæsilegu sem byltast um veraldarhafið. Kjarval hélt því fram að steypireyðurin væri gædd ríkari og heitari tilfinningum en nokkur skepna önnur af því hvað hún hefur stórt hjarta, þess vegna mætti ekki veiða hana. Við megum ekki missa fleiri stór hjörtu úr heiminum.

          Dansverkið Ambra eftir Inu Christel Johannessen sem Íslenski dansflokkurinn og Carte Blanche frá Bergen sýndu á Listahátíð fjallaði um hvali, það sýndi hvalbeinið á sviðinu og ekki síður hvalahljóðin sem dansararnir dönsuðu eftir. Annars skilaði efnið sér sjaldan beinlínis í dansinum, einna helst þegar flokkurinn hlykkjaðist hægt fram sviðið með þokkafullum sporðaköstum. En eftir á má tengja margt við efnið, til dæmis á stemning angistar og þjáninga vel við dýr sem eru elt uppi með sprengjuhlöðnum hvalskutlum.

          Ballettinn var fjölbreyttur og oft skínandi fallegur, en ég er sammála gagnrýnendum sem hafa fundið að lengdinni. Hann væri áhrifameiri styttri.

Silja Aðalsteinsdóttir, Viðskiptablaðið 30.5. 2008

Stofutónleikaröð Gljúfrasteins

29. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  
Páll og Laufey.

hefst á sunnudaginn

Eins og undanfarin sumur verða tónleikar í stofunni á Gljúfrasteini alla sunnudaga klukkan 16. Fjölbreyttur hópur tónlistarmanna mun leika á stofutónleikaröðinni en það er Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari sem ríða á vaðið á sunnudaginn kemur. Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Á efnisskrá þeirra eru verk frá barokk-tímanum til okkar daga.

Það myndast alltaf sérstök stemning á stofutónleikunum, enda umhverfið og andrúmsloftið sérstaklega skemmtilegt.

Halldór Laxness var sem kunnugt er mikill áhugamaður um tónlist og tónlistarflutning. Hann lék sjálfur á píanó og hafði sérstakt dálæti á tónsmíðum J. S. Bach. Tónlist var alla tíð stór hluti af heimilislífinu á Gljúfrasteini, enda stóðu Halldór og Auður kona hans gjarnan fyrir tónleikum á Gljúfrasteini m.a. í samstarfi við Tónlistarfélag Reykjavíkur.

Dagskrá sumarsins er eftirfarandi:

1. júní   Laufey Sigurðardóttir, fiðla og Páll Eyjólfsson, gítar

8. júní   Áshildur Haraldsdóttir, flauta og Katie Buckley, harpa

15. júní  Chalumeaux tríóið – Sigurður Ingvi Snorrason, Kjartan Óskarsson og Óskar Ingólfsson

22. júní  Martin Frewer, fiðla og Steingrímur Þórhallsson, píanó

29. júní  Dean Ferrell og Sigurður Halldórsson syngja og leika á ýmsa strengi

6. júlí     Kristjana Stefánsdóttir, söngur, Agnar Már Magnússon, píanó og Helga Björg Ágústsdóttir, selló

13. júlí    Arnhildur Valgarðsdóttir og Ástríður Haraldsdóttir, fjórhent á píanó

20. júlí    Hallfríður Ólafsdóttir og Magnea Árnadóttir, flautur

27. júlí    Guðrún Ingimarsdóttir, söngur og Jónína Erna Arnardóttir, píanó

3. ágúst  Ó Ó Ingibjörg – Ingibjörg Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson og Ómar Guðjónsson

10. ágúst Nordic Affect – Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokk fiðla, Georgia Browne, barokk þverflauta og Hanna Loftsdóttir, barokk selló

17. ágúst  Hjörleifur Valsson, fiðla

24. ágúst  Steinunn Skjenstad, söngur og Solmund Nystabakk, gítar

31. ágúst  Gunnar Kvaran, selló

Aðgangseyrir er 500 kr. og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Myndlistin um helgina

29. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Spjall á Kjarvalsstöðum Við minnum á vikulegt opið og stefnulaust spjall og flæði í hádeginu á morgun föstudag frá kl. 12 á kaffistofu Kjarvalsstaða í þetta síðasta sinn vetrarins. Griðastaður í vikunni þar sem hægt er að hitta myndlistarmenn, fræðimenn, rithöfunda og bara alla sem vilja.

Vel mætt í síðasta spjall og umræðan snérist að sjálfsögðu um Listahátíð og myndlistarsýningar hennar. Einnig um viðburði sem farmundan eru í júnímánuði á landsbyggðinni svo sem við Halastjörnuna og Safnasafnið í Eyjafirði. Orðið er laust og af nógu að taka.

 

Ljósmyndasafn Reykjavíkur Á laugardag verður opnuð sýningin SKOVBO á ljósmyndum Viggo Mortensen. Heiti sýningarinnar gæti útleggst sem skógarbúi, skógarbýli eða í víðara samhengi það að eiga heima í skóginum. Sýningin stendur til 31. ágúst.

 

Margir tengja eflaust nafn þessa fjölhæfa listamanns fremur við leiklist en ljósmyndun en hann hefur notið mikillar velgengni sem kvikmyndaleikari og hlaut nýverið tilnefningu til Óskarsverðlauna. En leiklistin er aðeins hluti af stærri heild því hann hefur um árabil lagt stund á ljósmyndun við góðan orðstír ásamt listmálun, ljóðagerð og tónlist.

 

Viggo Mortensen hefur ferðast víða og búið á mörgum mismunandi stöðum um ævina og notar hann, þar af leiðandi, sitt nánasta umhverfi þar sem hann er hverju sinni sem efnivið fyrir ljósmyndir sínar. Hvort sem viðfangsefnið er agnir sólargeisla að brjótast inn í þykkan laufskrúð trjáa í Kraká í Póllandi, maður að klifra upp stiga í Úralfjöllum, sólþurrkaður runni í Nýju Mexíkó eða sef í skógarjaðri á Mið-Sjálandi, má greina sterklega í ljóðrænum og draumkenndum ljósmyndum hans hvernig hann sjálfur skynjar heiminn.

 

Samnefnd bók er gefin út meðfram sýningunni en í kynningu á henni segir: Í þessu nýja mynda- og ljóðasafni eru tré og minningin um tré, vofur, orð, nætur, daga, líf, dauða og öruggt skjól fyrir allt þetta á stað þar sem kvistir verða að greinum, / og margt býr í þokunni… (Osip Emilyevich Mandelstam). Ef þú þorir ekki inn í skóginn, eða finnur hann ekki, gætir þú ef til vill fundið eitt tré, eða stað sem tré væri að finna og einfaldlega staldrað við eitt þögult augnablik til að sjá hvað gerist.

Árið 2002 setti Viggo á fót útgáfufyrirtækið Perceval Press þar sem hann leggur áherslu á hugðarefni sín, listir, ljósmyndun, ljóðagerð og bókmenntir. Eins og mörgum Íslendingum er kunnugt kom þar út eigi alls fyrir löngu listaverkabók með verkum Georgs Guðna. Á meðal ljósmyndabóka á verkum hans sjálfs hafa komið út Recent Forgeries (Smart Art Press, 1998) SignLanguage (Smart Art Press, 2002), Coincidence of Memory (Perceval Press, 2002), Hole In The Sun (Perceval Press, 2002) og núna síðast bókin SKOVBO sem gefin er út í tengslum við sýninguna sem nú er sett upp í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.  

Ljósmyndasafn Reykjavíkur er til húsa í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6.hæð.

 

Tónlistarhátíðinni Björtum sumarnóttum

28. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  
Tríó Reykjavíkur í rómantísku stuði.

aflýst vegna jarðskjálftanna

Tónlistarhátíðinni Björtum sumarnóttum sem halda átti í Hveragerðiskirkju nú um helgina hefur verið aflýst vegna jarðskjálftanna sem riðu yfir Suðurland í gær. Menningarmálanefnd Hveragerðis tók ákvörðun um að blása hátíðina af að höfðu samráði við almannavarnanefnd Hveragerðis og sýslumann Árnessýslu.

 

 

STEYPA

28. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Hafnarhúsi fimmtudaginn 29. maí kl. 20

STEYPA – Heimildarmynd um íslenska samtímamyndlist verður sýnd í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi fimmtudaginn 29. maí kl. 20:00. Leikstjórar eru Markús Þór Andrésson og Ragnheiður Gestsdóttir. Í myndinni er fylgst með sjö listamönnum um tveggja ára skeið. Þau eru að koma undir sig fótunum heima og erlendis og tengjast hvert öðru á ýmsan hátt.

Ásmundur Ásmundsson hellir Pepsí í Fantaflöskur og spyr sig „hvað er list?“ Hann stingur upp á að það sé það sem listamaður geri. Gabríela Friðriksdóttir hendir í deig og smellir á andlitið á sér, Margrét Blöndal heillast af hulsum og pakkningum í Mosfellsbæ, Huginn Arason klippir af sér hárið og lætur búa til hárkollu, Unnar Auðarson stelur afleggjurum á elliheimili, Gjörningaklúbburinn endurskapar stjörnuhiminn Van Goghs úr lakkrísafgöngum, Katrín Sigurðardóttir smíðar lítið hús til þess eins að henda því fram af stærra húsi. Hvað liggur að baki? Á þetta erindi við okkur hin?

Lengd: 67 mínútur
Tónlist: Ólafur Björn Ólafsson
Grafík: Brynhildur Pálsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Sighvatur Ómar Kristinsson
Framleiðandi: LoFi Productions

AÐGANGUR ÓKEYPIS

 

Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa

26. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

í takt við tímann?

Sjálfstæðu leikhúsin – SL standa fyrir málþingi nk. fimmtudag 29. Maí kl. 12-14 í Iðnó um stöðu stjálfstætt starfandi sviðslistamanna. 

Yfirskrift málþingsins er:  Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa í takt við tímann? 

markmið málþingsins er að hefja samræður milli ráðamanna og sjálfstætt starfandi sviðslistamanna um það starfsumhverfi sem boðið er upp á  í dag en  jafnframt að varpa ljósi á þá þróun sem hefur orðið á mikilvægi atvinnuleikhópa fyrir íslenskt samfélag.  Mikil gróska hefur verið í starfseminni undanfarin ár og hið síbreytilega starfsumhverfi sviðslistamanna kallar á sveigjanlegt kerfi sem getur brugðist skjótt við þeim ólíku þörfum sem sjálfstætt starfandi sviðslistamenn þurfa til að þroskast og þróast sem listamenn.  Einnig er nauðsynlegt að gefa gaum að  aukinni útrás, leikferðum innanlands, alþjóðlegum hátíðum o.fl. en núverandi rammi bíður ekki upp á svegjanleikka til að bregðast við þessari þróun.   Með því að varpa ljósi á stöðuna vill SL hafa frumkvæði að því að hvetja til alsherjar endurskoðunar á sviðslistaumhverfinu á Íslandi. 

 

Mælendaskrá:

 

Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Menntamálaráðuneytinu

Opnar málþingið og fer yfir hlutverk og skyldur hins opinbera gagnvart sjálfstætt starfandi sviðslistahópum  

 

Orri Hauksson formaður Leiklistarráðs

Kostir og gallar úthlutunarreglna Leiklistarráðs

 

Ragnar Karlsson, frá Hagstofu Íslands

Þróun í aðsóknartölum síðustu tíu ára.

 

Páll Baldvin Baldvinsson, leikhúsfræðingur og blaðamaður

Mikilvægi atvinnuleikhópa í sögulegu samhengi

 

Aino Freyja Järvelä, formaður SL

SL, bandalag atvinnuleikhópa, horft til framtíðar. 

 

 

Umsjón og samantekt:

Magnús Árni Magnússon.

 

 

Léttur hádegisverður í boði SL.  

 

Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á netfangið leikhopar@leikhopar.is eða í síma: 551 1400 fyrir 28. maí 2008. 

 

 

Halaleikhópurinn í Þjóðleikhúsinu

26. maí 2008 · Fært í Fréttir ·  

Á hverju leikári stendur Þjóðleikhúsið fyrir vali á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti um valið á áhugasýningu ársins á þingi Bandalags íslenskra leikfélaga á Sauðarkróki þann 3. maí s.l., en fyrir valinu í ár varð sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu, leikgerð Dale Wasserman byggðri á skáldsögu Ken Kesey. Að venju verður sýningin sem fyrir valinu varð sýnd í Þjóðleikhúsinu, en Gaukshreiðrið verður sýnt á Stóra sviðinu miðvikudaginn 4. júní nk. Leikstjóri sýningarinnar er Guðjón Sigvaldason.

Markmið Halaleikhópsins er að „iðka leiklist fyrir alla“. Hópurinn hefur sett upp sýningar ár hvert sem margar hverjar hafa vakið mikla athygli. Hjá Halaleikhópnum er fengist við leiklist á forsendum hvers og eins. Um leið hefur hópurinn opnað augu almennings fyrir því að fatlað fólk getur, þrátt fyrir ýmsar hindranir, leikið á sviði eins og allir aðrir. Þar með hefur hópurinn á sinn hátt átt þátt í að eyða fordómum í garð fatlaðra.
Gaukshreiðrið fjallar í víðu samhengi um vald og valdbeitingu andspænis dirfsku einstaklinganna og samtakamætti hinna kúguðu. En um leið fjallar verkið um stöðu geðsjúklinga, hvaða augum samfélagið lítur þá og hvað felst raunverulega í því að vera geðveikur. Þetta er ógnvekjandi en um leið sprenghlægilegt verk sem notið hefur gífurlegra vinsælda víða um heim um árabil. Verkið endurspeglar uppreisnaranda sem ríkjandi var í hinum vestræna heimi á seinni hluta sjöunda áratug síðustu aldar. Vistmanni á geðsjúkrahúsi misbýður harðstjórn og miskunnarleysi á stofnuninni og ákveður að gera uppreisn. Kerfið bregst ókvæða við og allt er gert til að brjóta uppreisnina á bak aftur. Í gegnum baráttuna sem á sér stað í verkinu kynnast einstaklingarnir nýjum og óvæntum hliðum á sjálfum sér og fólkinu í kringum sig. Þýðandi verksins er Sonja B. Jónsdóttir

Í umsögn dómnefndar Þjóðleikhússins kemur fram að verkefnaval leikhópsins beri vott um mikinn metnað, kjark og stórhug: ,,Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði að ,,iðka leiklist fyrir alla” fagnaði fimmtán ára afmæli sínu á þessu leikári. Rétt eins og Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga og leiklistar í landinu almennt, öðlast hið þekkta leikrit Gaukshreiðrið nýjar víddir í meðförum leikhópsins. Fötlun leikenda stendur engan veginn í vegi fyrir túlkun á verkinu, heldur þvert á móti auðgar hana og styrkir. Styrkur sýningarinnar felst þannig ekki síst í sterkri liðsheild, þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín á eigin forsendum, þó hlutverkin séu vissulega mismunandi stór. Framsögn er til mikillar fyrirmyndar og sama má segja um hlustun og allan samleik. Langmest mæðir á þeim Gunnari Gunnarssyni (Gunsó) í hlutverki Randle P. Murphy og Sóleyju Björk Axelsdóttur í hlutverki Ratchet hjúkrunarkonu. Bæði áttu þau góðan leik. Leikmynd, búningar, lýsing, hljóðmynd og förðun myndaði sterka heild og einstaklega sannfærandi umgjörð um sýninguna.”
Tekið skal fram að rými fyrir áhorfendur í hjólastólum verður aukið í salnum á þessari sýningu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.halaleikhopur.is

 

Næsta síða »