Innflytjendur auðga menninguna
Fjölmenningarkvöld í Alþjóðahúsinu
Þann 7. ágúst verður haldið menningarkvöld í Alþjóðahúsinu. Fyrri hluta þess ætlum við að spjalla um íslenskunám fyrir fólk af erlendum uppruna, hvernig staðið er að því og hvað fjölmenning getur gert fyrir íslenskuna. Kannski veitir ekki af að kenna fleira fólki málið?
Í þessum umræðum verða Páll Valsson íslenskufræðingur og höfundur, Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur og þingmaður, Toshiki Toma prestur, kennarar sem hafa kennt innflytjendum íslensku og fólk sem hefur flutt til Íslands og stundað íslenskunám.
Eftir kaffi er ætlunin svo að fjalla um það hvernig innflytjendur auðga bókmenntir um þessar mundir. Hvernig margir mjög áberandi höfundar í heiminum eru afsprengi tveggja eða fleiri ólíkra kúltúra, skrifa verk í anda þess, umbylta viðteknum hugmyndum og krydda tungumál á borð við ensku. Höfundar eins og Salman Rushdie, Kiran Desai, Marina Lewycka og Zadie Smith (svo fáeinir séu upptaldir) – og líka höfundar á borð við nýja nóbelsverðlaunahafann Orhan Pamuk sem hljóta það strembna hlutskipti að verða ósjálfrátt einskonar brú milli kúltúra, jafnvel í pólitísku tilliti.
Svo má velta upp spurningunni hvenær Íslendingar eignast sína fyrstu fjölmenningar-höfunda. Höfunda sem flytja ungir til landsins, eiga erlenda foreldra eða eru tvítyngdir (já eða málaséni) og geti þannig varpað nýju ljósi á fjölmenningu á Íslandi, jafnvel fært okkur ferska sýn á samfélagið.
Í þessum umræðum bætast í hópinn Þorgerður E. Sigurðardóttir bókmenntafræðingur, Sjón rithöfundur, Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur og Auður Jónsdóttir rithöfundur – og jafnvel fleiri höfundar og spekúlantar. Og að sjálfsögu fólk frá Alþjóðahúsinu með sérstakan áhuga á efninu. Auk þess er spjallið opið öllum.
Þann 8. ágúst verður svo rætt um praktískari mál: Réttindi, pólitíska stöðu og hagræn áhrif innflytjenda. Þar munu koma fram ritgerðarskrifarar úr háskólanum sem hafa rannsakað fjölmenningu, fólk á vegum Alþjóðahússins, fólk frá Rauða krossinum, hinir ýmsu fræðingar og aðilar sem hafa að gera með réttindi og aðbúnað fólks af erlendum uppruna á Íslandi.
Dagskráin hefst kl. 18 bæði kvöldin.
Kvikmyndahátíð í Reykjavík
![]() |
| Hin undurfagra Hanna Schygulla sækir Ísland heim í haust. |
27. september til 7. október
