Ólöf Arnalds á Gljúfrasteini á 17. júní

13. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  

Á sunnudaginn kemur verður aftur skipt úr klassíska gírnum á stofutónleikum Gljúfrasteins því þá mun Ólöf Arnalds flytja lög af nýútkominni hljómplötu sinni. Platan ber titilinn Við og við og hefur að geyma þjóðlagaskotna melódíska popptónlist. Sem fyrr hefjast tónleikarnir klukkan 16.00 og aðgangseyrir er aðeins 500 krónur.

Ólöf Arnalds er fædd í Reykjavík 4. janúar 1980. Hún hóf tónlistarnám árið 1986 í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og lærði þar á fiðlu hjá Hrönn Geirlaugsdóttur. Einnig söng hún hlutverk Kalla í barnaóperunni Kalla og sælgætisgerðinni eftir Hjálmar H. Ragnarsson, sem flutt var 1993 í tilefni af 40 ára afmæli Tónmenntaskólans. Ólöf hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík árið 1996 og nam þar söng undir handleiðslu Ruthar Magnússon. Hún lauk stúdentsprófi af tónlistarbraut frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vorið 2000. Ólöf lauk B.A. gráðu í tónsmíðum og nýmiðlun frá Listaháskóla Íslands vorið 2006. Lokaverk hennar, myndbandstónverkið Eins og sagt er var frumsýnt í Íslensku óperunni við mjög góðar undirtektir. Vegna fjölda áskorana var verkið tekið til sýningar um nokkurt skeið í Þjóðmenningarhúsinu í kjölfar sýningar hússins á því á Menningarnótt. Fyrsta sólóplata Ólafar, Við og við, kom út hjá 12tónum í febrúar og hefur hlotið frábærar viðtökur og einróma lof gagnrýnenda. Ólöf hefur í gegnum tíðina unnið með mörgum þekktum íslenskum tónlistarmönnum og hljómsveitum. Mætti þar helst nefna Skúla Sverrisson, múm, Slowblow og Mugison.

Guðmundur fékk smásagnaverðlaunin

13. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  
Guðmundur Ólafsson – verðlaunasaga hans verður birt í TMM í haust.

í samkeppni MENOR og TMM

Smásagnasamkeppni MENOR og TMM var auglýst í fyrsta hefti TMM í ár og rann frestur út 1. maí. 53 handrit bárust  og var dómnefndin hæstánægð með árangurinn. Komu handrit alls staðar að af landinu og einnig frá Norðurlöndum og Bretlandi. Baráttan var hörð um efstu sætin og lauk svo að þrjár sögur voru verðlaunaðar með veglegri bókagjöf frá Eddu útgáfu. Fyrstu verðlaun hlaut Guðmundur Ólafsson, leikari, leikskáld og rithöfundur fyrir söguna “Yfirbót”. Hún verður birt í hausthefti TMM. Önnur verðlaun hlaut Arndís Þórarinsdóttir fyrir “Hnupl” og þriðju verðlaun hlaut Reynir Hjartarson fyrir söguna “Hefnd – eða fyrirgefning?” Þær verða líka birtar í TMM.

Guðmundur Ólafsson (f. 1951) er á þessari stundu einkum þekktur fyrir sinn frábæra einleik Tenórinn sem hann bæði semur og leikur, og hefur gengið og gengið í Iðnó, Borgarleikhúsinu og víða um land, en hann hefur gert ótalmargt fleira um ævina og er ekki ókunnugur verðlaunum. Fyrir sína fyrstu barnabók, Emil og Skunda fékk hann Íslensku barnabókaverðlaunin 1986, og þau hlaut hann aftur 1998 fyrir Heljarstökk afturábak. Auk þess hefur hann fengið smásagnaverðlaun Samtaka móðurmálskennara (1984) og Vikunnar (1998). Guðmundur hefur samið nokkur leikrit, bæði fyrir svið, sjónvarp og útvarp, þýtt fjölda verka og verið meðal ástsælustu leikara landsins af sinni kynslóð.

Arndís Þórarinsdóttir (f. 1982) hefur líka látið til sín taka á ritvellinum undanfarin ár og er með meistaraprófsgráðu í leikritun frá Bretlandi. Hún átti smásögu í TMM í hittifyrra (TMM 1/2005), og á menningarnótt í fyrra var smásagnahefti eftir hana dreift í strætisvagna borgarinnar, mörgum til ómældrar skemmtunar vikurnar á eftir. Í vor var hún svo leiklistarráðunautur Þorleifs Arnar Arnarssonar og Andra Snæs Magnasonar í hinni dýrlegu sýningu Eilíf hamingja sem Hið lifandi leikhús sýndi í Borgarleikhúsinu. 

Samvinna TMM og MENOR – Menningarsamtaka Norðlendinga – hefur nú staðið í þrjú ár eða síðan 2005. Fyrsta árið snerist samkeppnin um örsögur og sigraði Sigurlín Bjarney Gísladóttir með sögunni “Hún stormaði um í sjóstormi um hafið” (sjá TMM 3 2005). Í fyrra var beðið um þulu eða rapptexta og þá varð Þorsteinn G. Þorsteinsson hlutskarpastur með “Fjallaþulu” (sjá TMM 3 2006). Sjálf hafa Menningarsamtökin staðið fyrir samkeppni á sviði ritaðs máls í tuttugu ár eða frá 1987 í samstarfi við ýmsa aðila.

Í dómnefnd sátu nú Hólmfríður Andersdóttir bókasafnsfræðingur og Björn Teitsson íslenskufræðingur fyrir MENOR og Þorleifur Hauksson íslenskufræðingur fyrir TMM.

Leikur einn

12. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  
Meðal verka á hátíðinni er The Secret Face eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Pálína Jónsdóttir leikur ein.

Leiklistarhátíðin ACT ALONE 2007 verður haldin á Ísafirði 27. júní – 1. júlí. Aðgangur er ókeypis.

 

Dagskrá

Miðvikudagur 27. júní, Kl. 20. Alþýðuhúsið. Setning Act alone 2007. Opnunarsýning:
LEIKUR EINN.
Heimildarmynd. Framleiðandi: digi-Film. Handrit og leikstjórn: Jóhannes Jónsson.
Í þessari heimildarmynd er litið inn á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Act Alone sem haldin er árlega á Ísafirði og skyggnst inn á það svið leikhússins sem einleikur kallast. Reynt er að öðlast innsýn í einleiksformið og fá svör við ýmsum spurningum; hvað felst í hugtakinu einleikur? hvernig finnst mönnum að glíma við þetta form? – og ekki síst: hvert er vægi hans í tilveru leikhúsins? Rætt er við aðstandendur hátíðarinnar og þáttakendur.
Leikur einn var sýnd í Sjónvarpinu síðastliðið haust og á kvikmyndahátíð á Egilsstöðum í vetur. Myndin var gerð árið 2005 meðan Act alone hátíðin stóð yfir og eru sýnd brot úr einleikjum á borð við Gísla Súrsson og Ferðir Guðríðar.
Kl. 21.00 Hamrar. Léttar leikhúsveitingar og einleikin stemning.
Kl. 21.15 Hamrar. Kokteilleikhús. Sýndir verða tveir stuttir einleikir:
NEFNDARFORMAÐURINN. Litli Leikklúbburinn. Leikari: Árni Ingason. Höfundur: Benóný Ægisson. Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson.
,,Þegar kemur að nefndarstörfum kalla ég ekki allt ömmu mína. Ég hef meðal annars verið í búfjárveikivarnarnefnd og margur kjúklingurinn hefur fallið í valinn að fyrirmælum mínum…”
ÁLITSGJAFINN. Litli Leikklúbburinn. Leikari: Marta Sif Ólafsdóttir. Höfundur: Benóný Ægisson.
Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson.
,,É..
Ég…
Ég er…
..kolgeit..
…kolgeit-kona…
Ég er kolgeit-kona”

Fimmtudagur 28. júní. Kl.13.30 – 16.00 Háskólasetur Vestfjarða. Leiklistarnámskeið

BRÚÐULEIKHÚS. Kennari: Helga Arnalds, brúðuleikari. Tími: 28. júní – 30. júní. Kennslustundir: 9þ Verð: 10. þúsund. Taka þátt: Sendið tölvupóst á komedia@komedia.is.
Við lifum á tímum sem einkennast af nálgun, samruna og hverfandi landamærum. Allt má blanda saman nýju og gömlu, myndlist, orðum tónlist, leiklist, kvikmyndalist og dansi. Allar greinar listarinnar hafa orðið fyrir áhrifum af þessum straumum. Brúðuleikhús er kannski sú listgrein sem hefur orðið fyrir mestum breytingum á stuttum tíma. T.d. var litið á það sem fúsk eða stórslys - ef ekki beinlínis klúrt – ef sást í brúðustjórnanda fyrir svona 30 árum. En þetta skref fram fyrir skerminn leysti nýja krafta úr læðingi og kom af stað spennandi ferli.
Hvert tímabil á sér sínar forsendur og það var sú tíð að brúða sem hreyfðist, að því er virtist af sjálfu sér, var galdri líkust, en í dag – á tímum tölvunnar – er galdurinn fólginn í öðru en hreyfitæknni brúðunnar. Nú er kveikjan að galdurinn er fólginn meira í sambandinu milli brúðu og leikara. Milli efnis og anda. Myndmál er að sækja á gagnvart orðinu og leiksýningar smám saman að verða myndrænni. Snertipunktur myndlistar og leiklistar er að verða meira áberandi og enmitt á þessum snertipunkti er brúðuleikhúsið.
Á námskeiðinu gerir hver þátttakandi eina brúðu sem getur verið hans “alter ego” eða æðra sjálf hluti af honum sjálfum. Hans besta, versta ósýnilegasta, draumkenndasta hlið sem hann myndgerir og tjáir með brúðunni.
Helga Arnalds hlaut menntun sína í leiklistarháskólanum Instituto del Teatro í Barcelona og í leiklilstarháskólanum DAMU í Prag. Hún stundar nú myndlistarnám við Listaháskóla Íslands. Helga hefur rekið leikhúsið 10 fingur í ein 12 ár en auk þess hefur hún leikstýrt, hannað búninga, brúður og grímur fyrir ýmis leikhús og sjónvörp.

EINLEIKUR. Kennari: Ole Brekke, skólastjóri The Commedia School í Danmörku. Tími: 28. júní – 30.júní. Kennslustundir: 9. Verð: 10 þúsund krónur. Taka þátt: Sendið tölvupóst á komedia@komedia.is.
Að leika einn þýðir að þú hefur ekki mikla valmöguleika á því hver meðleikari þinn verður í verkinu. Þeir einu sem eru með þér eru áhorfendur, hópur fólks sem gæti gert hvað sem er. Hópur sem þú þekkir ekki vel og að auki er nýr hópur hverju sinni. Maður þarf að geta svarað sjálfkrafa og skapandi til hvers nýs hóps, til að geta leikið með og án mannfjöldans með þeirra viðbrögðuðm gagnvart þínu verki. Þetta námskeið mun kenna þér brögð til að framkalla þá næmni og hvittni og hjálpar þér við að líða vel í þessari einmannalegu stöðu þessarar óvissu.
Ole Brekke hefur áralanga reynslu af einleiknum bæði sem leikari og kennari. Hann starfrækir eigin leiklistarskóla, The Commedia School, í Kaupmannahöfn í Danmörku. Látbragð, trúðsleikur og kómedíuleikur er í aðalhlutverki í skólanum. Ole Brekke hefur gert garðinn frægan sem trúðurinn Otomoto sem hefur skemmt börnum á öllum aldri víða um heim. Otomoto verður á dagskrá Act alone í ár en hann var einnig gestur hátíðarinnar í fyrra. Nú snýr hann aftur með splunkunýtt ævintýri Otomoto.

Kl. 17.00 Austurvöllur
AUMINGJA LITLA LJÓÐIÐ. Kómedíuleikhúsið. Leikari: Elfar Logi Hannesson. Höfundur: Hallgrímur Oddsson.
Er ljóðið dautt? Þessi klassíska spurning hefur verið lífseig í gegnum árin og er höfundi verksins tilefni til vangaveltna um stöðu ljóðlistarinnar í nútíma samfélagi. Í verkinu er saga ljóðlistarinnar rakin í stuttu máli allt frá upphafi til nútímans. Fjölmörg ljóð eru í leiknum og eru þau öll sótt í smiðju vestfirskra skálda og má þar nefna Stein Steinarr, Jón úr Vör, Steingerði Guðmundsdóttur og Guðmund Inga Kristjánsson.

Kl.20.00 Edinborgarhúsið
THE SECRET FACE. Leikari: Pálína Jónsdóttir. Höfundur: Elísabet Jökulsdóttir. Leikmynd: Árni Páll Jóhannsson. Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson. Búningar: Filippía Elísdóttir. Kvikmynd: Elísabet Rónaldsdóttir. Leikstjórn: Steinunn Knútsdóttir.
The Secret Face eða Blinda kindin eftir Elísabeti Jökulsdóttur er ævintýraleg tragíkómedía um ástfangna konu sem er að bíða eftir ,,heimspressunni.”. Á mörkum draums og veruleika í landslagi náttúru og margmiðlunnar takast á gleði og martröð persónunnar sem renna saman í stórbrotið sjónarspil.

Kl. 22.00 Hótel Ísafjörður
Kaffileikhús. EINLEIKIN KONA. STEINGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR.
Dagskrá um Steingerði Guðmundsóttur sem sérhæfði sig í einleiknum og lék marga leiki hér á landi á síðustu öld. Steingerður var fjölhæf listakona hún samdi leikrit, ljóð og var einnig leiklistargagnrýnandi um tíma. Jóna Símonía Bjarnardóttir flytur erindi um Steingerði og Elfar Logi Hannesson. Síðast en ekki síst verður fluttur útvarpseinleikur eftir og með Steingerði Guðmundsdóttur. Leikurinn er fluttur í samstarfi við Útvarpsleikhúsið.

Föstudagur 29. júní
Kl.12.00 Hótel Ísafjörður
Hádegisleikhús. Sýndir verða leikirnir:
UM SKAÐSEMI TÓBAKSINS. Litli Leikklúbburinn. Leikari: Ársæll Níelsson. Höfundur: Anton P. Tsjekhov. Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson.
,,Heiðruðu dömur, og á sína vísu, heiðruðu herrar. Þess hefur verið farið á leit við konu mína, að ég flytti hér einskonar alþýðlegan fyrirlestur til styrktar góðu málefni.”

LOVERMAN. Litli Leikklúbburinn. Leikari og höfundur: Hallgrímur Hróðmarsson. Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson.
,,Ég má ekki vera of áberandi í kvöld. Ekki datt mér í hug hér fyrir þremur árum þegar ég kom hingað vestur að ég ætti eftir að taka þátt í þessu.”

Kl. 13.30 Hamrar
PÍLA PÍNA. Leikari: Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Höfundur: Kristján frá Djúpalæk. Tónlist: Heiðdís Norðfjörð.
Klassíkt ævintýri um músina Pílu Pínu sem fer í ævintýraleit.

Kl. 14.30 – 16.30 Háskólasetur Vestfjarða
Leiklistarnámskeið – dagur tvö. Brúðuleikhús. Einleikur

Kl. 17.00 Hamrar
Tvíleikin gestasýning: Hrafnkelssaga Freysgoða. Stoppleikhópurinn. Leikarar: Eggert Kaaber, Sigurþór A. Heimisson. Leikgerð og leikstjórn: Valgeir Skagfjörð. Leikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson.
Hrafnkelssaga Freysgoða eða Hrafnkatla, er í hópi þekktustu Íslendingasagna. Þar segir frá því þegar Hrafnkell Freysgoði drepur Einar Þorbjarnarson smalamann fyrir þá sök að ríða hestinum Freyfaxa í leyfisleysi. Í kjölfarið stefnir Sámur Bjarnason Hrafnkeli fyrir vígið og dregur það mál mikinn dilk á eftir sér.

Kl. 20.00 Edinborgarhúsið
OTOMOTO: The Authority – Gestasýning frá Danmörku. Leikari og höfundur: Ole Brekke.
Lífi nútímanns er stjórnað og mótað af yfirvöldum. Hmmm? Það er það sem yfirvöldin vilja trúa. En við vitum öll að okkar lífi er stjórnað og mótað af mistökum, misskilningi, að ,,fatta ekki djókið” og öðrum óhöppum. Þetta veit hvert mannsbarn. Þessvegna hafa þau gaman af trúðnum Otomoto. Fullorðnir munu einnig skemmta sér og kannast við ýmis kunnugleg óhöpp sem Otomoto verður fyrir á leið sinni til að spila á tónleikum.

Kl. 22.00
AÐ LEIKA EINN. Málþing um einleikjaformið.

Laugardagur 30. júní
Kl. 10.00 – 12.00 Háskólasetur Vestfjarða
Leiklistarnámskeið – lokadagur. Brúðuleikhús. Einleikur.

Kl. 13.00 Hamrar
MR TROSS – Gestasýning frá Eistlandi. Leikari og höfundur: Toomas Tross. Leikstjórn: Haide Mannamae.
Mr Tross er atvinnu leikhúsræstitæknir og er mjög stoltur af starfi sínu. Hann hefur verið ráðinn til að þrífa Hamra að lokinni sýningu en ákveður að mæta soldið fyrr og sjá sýninguna. Tross mætir síðastur í salinn og á í erfiðleikum með að finna sér sæti því hann var ekki búinn að panta miða. Á einhvern undarlegan hátt endar hann uppá leiksviði og er þar staddur í sviðsljósinu. Auðvitað halda allir að hér sé leikari sýningarinnar og fáa grunar að hann sé ræstitæknir. Mr Tross þykir mjög vænt um áhorfendur og þar sem hann er nú einu sinni kominn á sviðið þá ákveður hann að sýna Ræstitæknaleikritið. Hann galdrar, syngur og sýnir fimleika. Allt fyrir áhorfendur sem hann elskar og vonast um leið til að vera dáður af þeim.

Kl. 14.30
SMJÖRBITASAGA. Sögusvuntan. Leikari, höfundur, brúður og leikmynd: Hallveig Thorlacius.
Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir.
Leikurinn fjallar um strákinn Smjörbita og Gullintanna hundinn hans. Þeir eru gráðugir í nýsteiktar kleinur og það verður Smjörbita litla dýrkeypt, þegar stærðarinnar tröllskessa kemur arkandi ofan úr fjöllunum í leit að strák í súpu handa dóttur sinni. Hún platar hann til fjalla. Þá verða áhorfendur að beita ýmsum brögðum til að Smjörbiti lendi ekki í súpupottinum hennar….
Sýningin hefur ferðast um hálft Grænland þar sem Smjörbiti gengur undir nafninu Punniminneq.

Kl. 16.00 Hamrar
SÓLARSAGA. Leikhúsið Tíu fingur. Leikari, handrit, brúður: Helga Arnalds. Tónlist: Eyþór Arnalds. Leikstjórn: Helga Braga Jónsdóttir
Sagan er fléttuð úr þjóðsögum af sólinni frá ýmsum löndum. Hún gerist fyrir langa löngu. Þegar Sólin var bæði fögur og feit, hnöttótt og heit og einstaklega hláturmild. Á hverjum morgni sungu dýrin og mennirnir sólarsöngin svo jörðin snérist í hringi af gleði. En á annarri plánetu í sólkerfinu bjó Hnetukonungurinn ásmat Plágu litlu prinsessu. Kónginum þótti svo vænt um dóttur sína að hann gat ekki neitað henni um neitt. En Plága prinsessa átti afmæli og vasalings kónginum kom ekkert í hug til að gefa henni sólina. Það er á þessu andartaki í sögunni sem kemur í hlut okkar áhorfendanna að sýna hvað í okkur býr því ekki getum við látið dýrin á jörðinni krókna úr kulda. Eins og í öðrum sýningum leikhússins taka börnin virkan þátt í sögunni og ekki stendur á þeim að bjarga heiminum á einum morgni eða eftirmiðdegi.

Kl. 17.00 Hamrar
EINN Á SVIÐI. Fyrirlestur. Elfar Logi Hannesson fjallar um nokkra fræga einleikara þar á meðal Dave Allen, Eric Bogosian og Ruth Draper. 

Kl. 20.00 Hamrar
ÞRYMSKVIÐA OG IÐUNNAREPLIN.
Stoppleikhópurinn. Leikari: Eggert Kaaber. Leikgerð: Eggert Kaaber, Katrín Þorkelsdóttir. Leiktjöld: Edwin Kaaber. Leikmunir: Guðrún Öyahals.
Leikstjórn: Margrét Kaaber.
Byggir á sögunum um Iðunni og eplin og Þrymskviðu. Leikverkið er litrík ævintýraferð um heim norrænnar goðafræði en markmiðið með sýningunni er að kynna fyrir börnum helstu sögupersónur goðafræðinnar ásamt þekktustu sögubrotum hennar.
Þrymskviða segir frá því þegar hamri Þórs, Mjölni, er stolið. Eftir bollaleggingar Þórs og Loka heimsækir Loki síðan Jötunheima. Þar kemst hann að því að eina leiðin til að fá hamarinn Mjölni til baka er að Freyja gangi að eiga Þrym. Þetta tekur Freyja ekki í mál og upphefst þá spennandi atburðarás því Þór og Loki ákveða að dulbúa sig sem Freyja og fylgdamey hennar.
Iðunn og eplið segir frá því þegar Loki tælir Iðunni burt úr Ásgarði til Miðgarðs. Þar birtist jötuninn Þjasi, í Arnarlíki, og nemur hana á brott. Allt er í upplausn í Ásgarði því án Iðunnar og eplanna eldast goðin og deyja en jötnar munu lifa að eilífu.

Kl.22.00 Hamrar
SKRÍMSLI. Kómedíuleikhúsið. Leikari: Elfar Logi Hannesson. Höfundur: Pétur Eggerz. Tónlist og hljóðmynd: Guðni Franzson. Skrímslateikningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir. Leikmynd: Pétur Eggerz. Leikstjórn: Pétur Eggerz.
Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi og frásögur af samskiptum þeirra við landsmenn frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar fylla heilu ritsöfnin. En hverjar eru þessar dularfullu verur, hvar er þær helst að finna og hvernig er best að bera kennsl á þær?
Þessum spurningum svarar skrímslafræðingurinn Jónatan Þorvaldsson og setur um leið fram óvéfengjanlegar sannanir fyrir tilvist skrímsla í sjó og vötnum á Íslandi.

Sunnudagur 1. júlí

Kl. 14.00 Félagsheimilið Þingeyri
HÖLL ÆVINTÝRANNA. Möguleikhúsið. Leikari og höfundur: Bjarni Ingvarsson. Leikmynd, búningar og leikgerfi: Katrín Þorvaldsdóttir. Tónlist: Jónas Þórir. Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson
Sagnaþulur nokkur á stefnumót við áhorfendur. Í farteskinu hefur hann sögur og ævintýri sem hann færir í leikrænan búning á einfaldan hátt. Geiturnar þrjár trítla yfir brúna þar sem tröllið ógurlega liggur í leyni, undurfögur höll býr yfir ótal ævintýrum og haltur hani svífur um loftin blá á vængjum ímyndunaraflsins.
Hér er á ferðinni leiksýning fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja til 8 ára þar sem börnin fá að taka virkan þátt í atburðarásinni og gleyma sér í heimi ævintýranna um stund.

Kl.15.30 Félagsheimilið Þingeyri
ÉG LÍT Í ANDA LIÐNA TÍÐ. Leikari og höfundur: Guðrún Ásmundsdóttir. Sópran: Alexandra Chernschova. Baritone: Þórhallur Barðason. Undirleikur: Sigríður Ragnarsdóttir.
Guðrún Ásmundsdóttir er einn ástsælasti listamaður okkar og hefur frá mörgu að segja. Hún er sögumaður af guðs náð og í þessari sýningu segir hún frá því þegar hún kom í leikferð á Ísafjörð fyrir 40 árum með leikritið Ævintýri á gönguför. Með í för voru Ísfirðingarnir Brynjólfur Jóhannesson og Áróra Halldórsdóttir sem sögðu henni frá leikhúsinu á Ísafirði og þar kynntist hún einnig leikkonunni Sigrúnu Magnúsdóttur. Inn í sögu þeirra verður fléttuð saga Sigvalda Kaldalóns, þegar hann lifði og starfaði sem læknir að Ármúla við Ísafjarðardjúp. Karl Oluf Bang fóstursonur Sigvalda kemur einnig við sögu í leiknum. Hér er á ferðinni einstakt söguleikhús sem enginn ætti að missa af.

Kl. 17.00 Félagsheimilið Haukadal í Dýrafirði
VESTFIRSKIR EINFARAR. Myndlistarsýning á verkum eftir listahjónin Gunnar Guðmundsson og Guðmundu Jónu Jónsdóttur frá Hofi í Dýrafirði. Bæði fóru sínar eigin leiðir í listinni og eru því í hópi svonefndra einfara í hinum íslenska myndlistarheimi.

Kl. 17.30 Félagsheimilið Haukadal í Dýrafirði
Söngvar fyrir börn. Höfundur og flytjandi: Þórarinn Hannesson

Þórarinn Hannesson hefur verið viðloðandi tónlist í hartnær 30 ár og komið fram sem söngvaskáld með sitt eigið efni í 20 ár. Í þessari dagskrá fyrir börn á öllum aldri flytur hann eigin lög og texta sem og ljóð sem fjalla um uppvaxtarár hans á Bíldudal. Einnig mun hann flytja eigin lög við texta eftir skáldið og uppfræðarann Herdísi Egilsdóttur sem gefin verða út á geisladiski í sumar til styrktar Regnbogabörnum. Textarnir fjalla um hinar ýmsu dyggðir t.d. Traust, Tryggð, Vinsemd, Ábyrgð og Þolinmæði. Ber diskurinn nafnið Ég vinur þinn er.

 

Hátíðarlok.

Nýjar bækur og tímarit

11. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  

Sjá Á líðandi stund http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublication&intPublId=970

 

Nýjar bækur og tímarit

11. júní 2007 · Fært í Á líðandi stund ·  

Ég byrjaði á skáldskapnum í Skírni, las mér til ánægju ljóð Kristínar Svövu Tómasdóttur, Óttars M. Norðfjörð og Kristínar Eiríksdóttur og flissaði að “einrömmungum” Hugleiks Dagssonar, en þegar ég kom að smásögu Steinars Braga, “Kristalsgíraffanum”, þá varð ég einkennileg innan um mig. Mér fannst ég vera að lesa Karen Blixen – og ekki hvaða bók sem er heldur mína eftirlætisbók eftir hana, Syv fantastiske fortællinger! Ekki það að Steinar Bragi sæki til hennar hugmyndir, hér er nútíminn undir, grimmur og margslunginn, en þetta er göldróttur texti á furðulega svipaðan hátt og hjá Blixen. Frábær saga. 

Annað sem ég hafði gaman af að lesa í Skírni var “Óðinn, Þór og Egill” eftir Heimi Pálsson sem birtir mér allt aðra ímynd guðanna Óðins og Þórs en ég á að venjast. Mjög sannfærandi. Ástarjátning Einars Más Guðmundssonar til Halldórs Laxness var líka skemmtileg og sannfærandi en hefði kannski notið sín betur á öðrum vettvangi en þessum. Einar á erindi við fólk sem er ókunnugra Laxness en venja er með Skírnislesendur. En textinn er sjarmerandi og skiljanlegt að ritstjórinn, Halldór Guðmundsson, hafi fallið fyrir honum. Hrafnhildur Schram skrifar um myndlistarmann Skírnis sem að þessu sinni er Eyborg Guðmundsdóttir, merkur myndlistarmaður sem féll frá á miðjum aldri og hefur orðið útundan í umfjöllun um þróun myndlistar hér á landi eins og Hrafnhildur sýnir fram á.

Ég hef lengi haldið mikið upp á sjálfsævisögu Hannesar Sigfússonar og mér finnst Gunnþórunn Guðmundsdóttir gera henni skínandi góð skil í grein sinni, “Sjálf í frásögn”. Hún þrýstir fingri á það sem gerir sögu Hannesar einkennilega heillandi í dapurleika sínum þegar hún segir ævisagan sé um það “‘af hverju ég varð ekki stórskáld’” og bætir við: ”að því leyti sker hún sig úr fjölmörgum íslenskum og erlendum sjálfsævisögum skálda.”

Í bókmenntatímaritinu Stínu er jafnvel ennþá meira um hákarla í ritlistinni en í Skírni, hver verðlaunahöfundurinn rekur þar annan – Hallgrímur Helgason, Ingibjörg Haraldsdóttir, Thor Vilhjálmsson, Sigurbjörg Þrastardóttir … Það er von að ritnefndarmaðurinn Guðbergur Bergsson sé stoltur af sínu riti, enda má hann vera það. Stína, segir hann í ritstjórnarpistli, ”er ung og leitandi [...] og reynir að flýja þau örlög að vera eins og önnur íslensk tímarit, einhvern veginn alltaf í andaslitrunum. Stína myndi aldrei sætta sig við það golugeispandi ástand, ekki einu sinni undir dúnsæng bókmenntafélags. Heldur vildi hún detta niður dauð en verða eins og tímaritin sem eru þannig að það tekur því ekki að nefna þau á nafn.”

Þarna er harkalega vegið að Skírni og TMM sýnist mér, því þau eru einu tímaritin sem eru “undir dúnsæng bókmenntafélags” (og vandséð hvers vegna það er syndsamlegra en að vera undir dúnsæng Alþingis eða Háskóla Íslands). Stína er meira að segja undir horni af dúnsæng því JPV er með aðra aðalauglýsingu heftisins. Annars datt mér í hug að fleiri skrifuðu kannski undir dulnefni í Stínu en ábyrgðarmaðurinn Kormákur Bragason (alías Bragi Jósefsson) því ég get ekki betur séð en ritstjórnarpistill Guðbergs sé í raun og veru skrifaður af Tómasi Jónssyni.

Unnendur ljóðlistar á Íslandi hafa fylgst af áhuga með greinum Þorsteins Þorsteinssonar um Sigfús Daðason á undanförnum árum í Andvara, Ritinu, Són, Lesbókinni og Tímariti Máls og menningar. Nú hefur hann safnað þeim saman og bætt miklu efni við og gefið út í stórri og glæsilegri bók sem hann nefnir Ljóðhús eftir forlagi Sigfúsar. Þetta er ein stærsta bók sem skrifuð hefur verið um verk eins íslensks ljóðskálds, og það er ekki bara Sigfús sem er undir því hér eru kannaðar lendur evrópsks skáldskapar á öldinni sem leið þannig að maður er mun fróðari um skáldskap ýmissa erlendra risa eftir lesturinn en áður. Það er enn að segja um þessa bók að Þorsteinn skrifar afar læsilegan texta þannig að erfið viðfangsefni verða skýr í meðförum hans. Hann er þrautreyndur kennari og kann að útskýra og leiða mann áfram svo til fyrirmyndar er. Þegar svo bætist við að Sigfús er eitt merkasta skáld aldarinnar sem leið þá ætti að vera ljóst að þessa bók láta ljóðaunnendur ekki fara framhjá sér.

JPV lætur ekki nægja að gefa út bók um skáldskap heldur bárust þaðan þrjár ljóðabækur nú á fyrstu dögum sumars. Ein er frumraun höfundar síns þótt hann hafi áður gefið út ljóðaþýðingar. Þetta er Valdimar Tómasson bóka- og vísnasafnari og fjölfræðingur um hvort tveggja sem nú stígur fram sem ljóðskáld með bókinni Enn sefur vatnið. Í henni eru smáljóð sem flest fjalla um tilfinningaleg efni, ást og söknuð, og margt er þar vel og fallega sagt. Þetta ljóð heitir “Lind”:

Hjarta mitt

er hemuð lind.

 

Brestur

við minnstu báru.

Valgarður Egilsson læknir og vísindamaður gaf út bókina Á mörkum með ljóðum sem sum fjalla um náttúru á mörkum hins byggilega heims. Það er ægifagurt landslag í þessum ljóðum og heillandi birta og birtubrigði, en oft ansi kalt. Önnur ljóð bera vísindamanninum vitni, enn önnur sýna að menningararfurinn er skáldinu mikilsverð uppspretta hugmynda og kennda.

Eiginlega er ekki hægt að hugsa sér ólíkari bækur en Á mörgum Valgarðs Egilssonar og Glæpaljóð Kristians Guttesens sem er þriðja ljóðabókin í syrpunni. Þar gengur ungur maður ótrúlega nálægt sjálfum sér í opinskáum, í hæsta máta persónulegum ljóðum um jafnerfitt efni í ljóð og fóstureyðingu. Þetta er mergjuð bók og ekki spillir forsíðumyndin sem er af dúkkunum hans Jóhanns Ludwigs Torfasonar.

Surtsey – jörð úr ægi

10. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur opnað sýninguna Surtsey – jörð úr ægi á rishæð Þjóðmenningarhússins. Sýningin rekur myndunar- og þróunarsögu Surtseyjar fram til dagsins í dag og spáir fyrir um framtíð eyjarinnar og þróun lífríkis hennar næstu 120 árin. Á sýningunni er beitt nýjustu sýningartækni og margmiðlun við kynningu á ómetanlegum niðurstöðum vísindarannsókna í Surtsey.

Náttúrufræðistofnun Íslands og Toyota á Íslandi hafa undirritað samning um stuðning Toyota við rannsóknir Náttúrufræðistofnunar í Surtsey. Samningurinn kveður á um styrki til árlegra vöktunarferða næstu þrjú árin.

Í tilefni af undirritun samningsins er aðgangur ókeypis á sýningu Náttúrufræðistofnunar Surtsey – jörð úr ægi hér í Þjóðmenningarhúsinu til 19. júní í boði Toyota á Íslandi. Gestum býðst jafnfram að skoða aðrar sýningar í húsinu sér að kostnaðarlausu.

Þjóðin og náttúran

Náttúrulífsmyndin Þjóðin og náttúran eftir Pál Steingrímsson kvikmyndagerðamann hefur verið tekin til daglegrar sýningar. Sögupersónur myndarinnar eru, auk mannsins, dýrin í kringum okkur – íslenski hundurinn, hesturinn, lundinn, æðarfuglinn, gæsin og selurinn. Páll fangar í myndunum samspil manns og náttúru á sinn varfærna og næma hátt þar sem virðingin fyrir viðfangsefninu er í fyrirrúmi.

Kvikmyndin er 30 mínútur að lengd og er hægt að setjast niður og njóta hennar hvenær sem er yfir daginn því hún er sýnd viðstöðulaust og hægt að koma inn í söguþráðinn hvar sem er.

 

Sem loftsteini lostin

9. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  

Sjá http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublication&intPublId=967

 

Leiðsögn um Cobrasýninguna

9. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  
Málverk eftir Else Alfelt – kannski frá Íslandi.

Á sunnudaginn kl. 14.00 mun Birgitta Spur safnstjóri Listasafns Sigurjóns Ólafssonar fjalla um tengsl Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara við nokkra listamenn Cobra hreyfingarinnar. Einnig mun hún varpa ljósi á þær hræringar sem áttu sér stað í myndlistinni á fjórða áratugnum í Danmörku, þátt listhópanna Linien, Helhesten og Höst sýningarhópsins. Birgitta ræðir einnig um þátt súrrealistanna eða hvernig ný lífeðilsfræðileg vitneskja um manninn og sálarlíf hans opnaði fyrir frjálsa tjáningu tilfinninga og kennda mannsins sem um leið veitti áhorfandanum nýtt frelsi til upplifunar og túlkunar. Fræðsludagskrá

Sýningin COBRA REYKJAVÍK er framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar í Reykjavík 2007. Sýningin er sérstaklega sett saman fyrir Listasafn Íslands og sýningarmiðstöðina SilkeborgBad í Silkeborg í Danmörku.
Sýningarstjóri er Per Hovdenakk.
Aðstoðarsýningarstjórar eru Harpa Þórsdóttir, Iben From og Lars Olesen.
Sýningin er í sölum 1, 3 og 4.

SVAVAR GUÐNASON Í LISTASAFNI ÍSLANDS
Salur 2 er tileinkaður Svavari Guðnasyni (1909-1988).
Í hópi Cobra-manna var Svavar fyrstur íslenskra listmálara til að leggja stund á frjálsa abstraktlist.
Á sýningunni eru 15 verk eftir Svavar.
Sýningarstjóri er dr. Ólafur Kvaran.

Sem loftsteini lostin

9. júní 2007 · Fært í Pistlar ·  

Viðskiptablaðið ætti að fjárfesta í málverki á sýningu Þuríðar Sigurðardóttur í nýju galleríi, Start Art við Laugaveg 12b. Þetta eru raunsæisleg verk, enda hefur Þuríður sérhæft sig í raunsæi sem er svo raunsætt að það nálgast ofurraunsæi, til dæmis í nákvæmum málverkum sínum af hrosshúð, en í þetta sinn hefur hún málað mýrar. Og mýrarnar hennar eru svo dásamlega blautar og súrefnisríkar að sjá að mann langar mest til að ösla þær. Í vistarverum Viðskiptablaðsins væru þær listræn ítrekun á vekjandi úttekt blaðsins á skaðlegri meðferð okkar á mýrlendi í áranna rás og mikilvægi þess að endurheimta það.

                Listahátíð í Reykjavík skilur eftir góða tilfinningu. Það nálgast að vera furðulegt að hlusta á rígfullorðið fólk tala um frönsku risessuna og ævintýrið sem hún skapaði í borginni þessa daga í maí meðan hún stóð við. Kaldhæðnasta fólk verður hreinlega ljóðrænt þegar það lýsir upplifun sinni á henni. Hvað var svona töfrandi, spyr maður. Stærðin? Hreyfingarnar? Augnaráðið? Menn eiga bágt með að styðja fingri á það nákvæmlega, en hún virðist hafa heillað á sama hátt og barn sem gerir allt í einu eitthvað sem maður vissi ekki að það gæti, stendur til dæmis upp og staulast nokkur skref áður en það dettur á bossann. Fólk trúði því auðvitað ekki að risessan gæti gengið, en það gerði hún, og það féll eins og steinn fyrir henni!

                Aðrir viðburðir tókust líka prýðilega – ballettinn, leiksýningarnar, óperan. Barítónana tvo hlustaði ég á í útvarpinu og það er dýrmætt þegar sent er beint frá slíkum stórviðburðum um land allt. Að vísu vantaði mikið að fá ekki þýðingu á textum með tónleikum Hvorostovskys, ég hefði viljað vita um hvað hann var að syngja. Terfel skildi ég betur og naut tónleikanna hans út í æsar þótt ég sæti heima í stofu. Vissulega hefði verið ennþá skemmtilegra að njóta þessara listamanna í sjónvarpi því báðir eru föngulegir menn (og annar sagður fagur) og hafa heillandi sviðsframkomu. Röddin er þó aðalatriðið og hún skilaði sér. Þetta var glæsileg hátíð, og það verður höfuðverkur fyrir Þórunni og samstarfsmenn hennar að koma með aðra að ári sem þarf að keppa við þessa.

                Bíðum við, ekki er öllu lokið. Myndlistarsýningar hátíðarinnar standa enn. Hönnunarsýningin Kvika á Kjarvalsstöðum ber  hugmyndaflugi Íslendinga skemmtilegt vitni. Ég hreifst til dæmis af fiskibeinamódelum Róshildar, súkkulaðifjöllum Brynhildar og Hafliða, selshami Víkur Prjónsdóttur, heklaðri hillu Guðrúnar Lilju og ekki síst sjálfbærum lampa þriggja hönnuða sem hleður sig í dagsljósi og lýsir að kvöldlagi. Hann er í laginu eins og mjólkurbrúsi og hugmyndin er frá Bakkabræðrum sem fylltu húfur sínar af sólarljósi og reyndu að bera það inn í gluggalaust hús sitt, en með lélegum árangri. Þá voru heldur ekki til ljósdíóður eða sólarsellur.

                Ég tók mér líka góðan tíma á Cobra sýningunni í Listasafni Íslands og sá ekki eftir því. Hún hefur að ýmsu leyti svipuð áhrif og risessan því mörg þessi litríku málverk eru eins og faglega unnar barnateikningar, enda voru Cobra-menn hændir að alþýðulist og næfri list hvers konar. Stórar, glaðar og ögrandi eru margar þessar myndir, þó spratt hreyfingin upp í aðdraganda heimsstyrjaldarinnar síðari og var að einhverju leyti viðbrögð við ógnum hennar. Það kom líka á óvart að hitta landið sitt fyrir endurskapað á myndum dönsku listamannanna Carls-Hennings Pedersen og Else Alfelt sem voru hér um tíma árið 1948.

                Cobra-hópurinn hafði mikil og víðtæk áhrif og hefur enn, og það er gaman að sjá á þessari sýningu fjölda málverka Svavars Guðnasonar sem var samstiga honum þótt hann væri tregur til að verða virkur meðlimur. Þegar Svavar sýndi í Listamannaskálanum 1945 var því svo lýst í íslenskum fjölmiðli: “Loftsteini hefur lostið niður í miðbæ Reykjavíkur, furðusendingu frá öðru menningarsviði.” Það er margur loftsteinninn, og þetta er hollt að hafa í huga þegar við mætum nýrri list sem við áttum okkur ekki á undir eins. Eftir nokkur ár verður hún kannski eins sjálfsögð og barnateikningar.

Silja Aðalsteinsdóttir, Viðskiptablaðið 8. júní 2007

Signý syngur ljóðaperlur

8. júní 2007 · Fært í Fréttir ·  
Signý syngur Halldór og Davíð …

á Gljúfrasteini á sunnudaginn

Á stofutónleikum Gljúfrasteins sunnudaginn 10. júní kl. 16 flytja þær Signý Sæmundsdóttir og Þóra Fríða Sæmundsdóttir sannkallaðar ljóðaperlur fyrir gesti. Þar á meðal eru lög við ljóð Halldórs Laxness en einnig við ljóð eftir Davíð Stefánsson og Johann Wolfgang von Goethe. Tónskáldin eru heldur ekki af verri endanum, Jón Þórarinsson, Jakob Hallgrímsson og Franz Schubert. Það má því segja að efnisskrá á sunnudagsins einkennist af glæsilegri þýsk-íslenskri blöndu.

Jón Þórarinsson:
1917-                         ‘Islenskt vögguljóð á hörpu            Halldór Laxness
                                  Dáið er allt án drauma                     —
 
Jakob Hallgrímsson:
1943-1999                    Vorvísa                                      Halldór Laxness
                                   Maistjarnan                                   —
                                  Um hina heittelskuðu                       —
                                  Allar vildu meyjarnar eiga hann     Davíð Stefánsson
 
Franz Schubert:
1797-1828                    Frühlingsglaube                              Uhland

                                   Wanderers Nachtlied                       W.Goethe

                                   Erster Verlust                                  W.Goethe
                                   Heidenröslein                                  W.Goethe
                                   Die Forelle                                      Schubert

 
Þóra Fríða og Signý hafa haldið reglulega tónleika sl. 20 ár víða hérlendis og erlendis m.a. í London í St.Martin in the Field kirkjunni, Grimsby, Færeyjum, Þýskalandi, Róm og víðar.

Signý Sæmundsdóttir
Signý stundaði söng og hljóðfæranám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vín (Hochschule für Music und darstellendi Kunst). Helstu kennarar hennar þar voru Helene Karusso og Eric Werba.
Signý hefur lengi verið áberandi í íslensku tónlistarlífi og sungið í Óperuuppfærslum í Íslensku Óperunni og Þjóðleikhúsinu ásamt því að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur o.fl.

Hún hefur haldið fjölda einsöngstónleika og sungið inn á upptökur fyrir útvarp og sjónvarp auk þess að flytja talsvert af samtímatónlist þ.á m. tónverk sem hafa sérstaklega verið samin fyrir hana. Signý hefur verið gestur á fjölmörgum tónlistarhátíðum hérlendis og erlendis.

Þóra Fríða Sæmundsdóttir:

Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1978. Eftir það lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Freiburg im Breisgau. Þaðan lauk hún Diploma prófi í píanóleik 1981. Síðan var hún við nám í Tónlistarháskólanum í Stuttgart þar sem hún valdi ljóðaflutning ”Liedgestaltung” sem sérgrein undir handleiðslu próf. Konrad Richter.

Eftir að Þóra Fríða kom heim frá námi 1984 hefur hún starfað sem píanóleikari og kennari í Reykjavík. Þóra Fríða hefur haldið fjölda tónleika aðallega sem meðleikari með söngvurum. Hún lék með íslensku hljómsveitinni um árabil og hefur oft  leikið í útvarpi og sjónvarpi. Þóra Fríða kennir m.a. við tónlistarskóla FÍH og tónskóla Sigursveins.

« Fyrri síðaNæsta síða »