Barnamenningarhefti

30. maí 2005 · Fært í Fréttir ·  
Kápumynd gerði Hugrún Arna Jónsdóttir (f. 1994) í listasmiðjunni Gagn og gaman í Gerðubergi.

2. hefti TMM 2005

Nokkrum sinnum áður hafa komið út sérstök hefti Tímarits Máls og menningar um barnamenningu og hafa þau orðið sérstaklega vinsæl, ekki síst meðal kennara í framhaldsskólum sem hafa getað nýtt sér þau í námskeiðum um barnabækur. Þetta hefti TMM er sérstaklega forvitnilegt vegna brotanna úr dagbókum Stefáns Jónssonar sem birta hugleiðingar sem margir barnabókahöfundar munu kannast við: tilfinninguna um að vera ekki metinn að verðleikum sem rithöfundur af því að hann skrifar fyrir börn. Samt var Stefán elskaður og dáður af öllum almenningi fyrir bækur sínar, ekki síst flutning þeirra í útvarp upp úr miðri 20. öld.

Viðtalið við Þorvald Þorsteinsson fjallar um fjórleikinn hans um Blíðfinn, litlu veruna með fíngerðu vængina, og birtir einstakar myndir af vinnu rithöfundar við frumlegt sköpunarverk. “Það er ekki bara til Blíðfinnur á barn heldur heill ævintýraheimur,” segir Þorvaldur í viðtalinu: “Hann er til vegna þess barns, í því barni og er það barn.”

            “Að blekkja barn” er athyglisverð grein um barnaleikhús eftir finnska rithöfundinn og leikskáldið Tove Appelgren: “Leikhúsfólk segir gjarnan að börn séu vandlátustu áhorfendur sem til eru,” segir þar: “Þetta er ekki satt. Fólk segir þetta bara til að réttlæta verk sem eru hálfköruð, krydduð með aulahúmor, söngvum, dansi og hasar.” Ítarleg athugun Tove hefur leitt í ljós “að börn eru í engu frábrugðin fullorðnum áhorfendum,” þau þurfa og vilja sjá metnaðarfullar leiksýningar. Í greininni skilgreinir Tove slíkar sýningar.

            Umsagnir eru í þessu hefti um nýjar endursagnir Íslendingasagna, nýjustu skáldsögur Guðrúnar Helgadóttur, Furðulegt háttalag hunds um nótt eftir Mark Haddon, ljóðabækurnar Niðurfall eftir Hauk Ingvarsson og Kjötbæinn eftir Kristínu Eiríksdóttur og ritgerðasafnið Miðaldabörn. Einnig er umsögn um sýningar Íslenska dansflokksins og menningaryfirlitið “Á líðandi stund”.

66. árgangur, 2. hefti maí 2005

1. maí 2005 · Fært í Tímarit ·  
Kápumynd gerði Hugrún Arna Jónsdóttir (f. 1994) í listasmiðjunni Gagn og gaman í Gerðubergi.

Efni

  • Gerður Kristný: Ægissíða
  • Draumsins hef ég að sakna – Brot úr dagbókum Stefáns Jónssonar
  • Ævintýrin fjalla um kjarna mennskunnar. Samtal við Þorvald Þorsteinsson um Blíðfinn
  • Fríða Theodórsdóttir: Vetrarljóð
  • Vilhjálmur Séamus Jónsson: Veturinn
  • Dagný Kristjánsdóttir: Margur óhreinn andinn
  • Hermann Stefánsson: Saga af strák sem var með tígrisdýr í tánni
  • Tove Appelgren: Að blekkja barn
  • Katrín Jakobsdóttir: Tækni og töfrar í nýjum barnabókum
  • Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir: Barnabókaútgáfan 2004
  • Þuríður Jóhannsdóttir: Textar sem tengja – um unglingabækur ársins 2004
  • Anna Elísabet Jóhannsdóttir: Vetrarnótt í Reykjavík
  • Birta Marsilía Össurardóttir: Vetrarljóð

Menningarvettvangurinn:

  • Sigþrúður Gunnarsdóttir: Á líðandi stund
  • Silja Aðalsteinsdóttir: Saknað
  • Sjón: Íslendingamyndasögurnar
  • Margrét Tryggvadóttir: Fjölskylda heimsins
  • Þorbjörg Daníelsdóttir: Leitað að morðingja hunds
  • Geirlaugur Magnússon: Tveggja mínútna rokklag
  • Sigríður Albertsdóttir: Hugur í flækjubendu
  • Silja Aðalsteinsdóttir: Eru miðaldir liðnar?
  • Sesselja G. Magnúsdóttir: Framsækinn dans
  • Sigríður Pétursdóttir: Við horfum sko ekki á ,,útlenskar” myndir
  • Kristín Atladóttir: Týndir áhorfendur?